Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 154
B Ú N A Ð A R R I T
146
ótta og hroll í sinni. Nú standa þeir vegi'arendum opnir,.
ekki til þess að gjalda gamla skuld með 14 stunda strit-
vinnu, lieldur eru gestirnir velkomnir til þess að sjá og
skoða það, sem þar finnst markverðast frá blómaöld-
inni horfnu.
Víða er land höfuðbólanna nú löngu skift niður í
nýbýli, en byggingarnar standa og eru notaðar sem
skólar, hressingarheimili, eða geymslustaðir fyrir söfn..
Sumar þessara gömlu stóru halla standa auðar og.
hrörna, hæði ytra og innra, en eigendurnir hafa ekki
efni á að viðhalda þeim lengur. Kynnisfarirnar eru
einnig á vorri öld, annað og meira en skemmtiferðir.
Nýir smábændur og nýjar húsmæður koma í stað þeirra
sem falla og hverfa af staríssviðinu. Einnig þau verða
að kynnast öðrum hliðum tilverunnar en þeim einum
sem þau skapa á eigin heimili. Landbrugets Ordbog.
segir um þessi efni nú á dögum:
„Kynnisfarir smábændanna hafa haft ómetanlega
þýðingu fyrir þróun og eflingu búnaðarins. Með eigin
augum hafa menn litið nýjungarnar og flutt þær með
sér heim, reynt þær sjálfir, og þannig hefir hið nýja
kynnst, jafnvel á afskekktum stöðum. Þúsundir smá-
bænda rekja framfarir búskapar síns til þess dags, er
þeir fóru hina fyrstu kynnisför, og góðu dæmin ná
fljótt út til nágrannans. Það var með hópförum bænd-
anna að smábýlastefnan fékk það hlutverlc sem hún
nú leysir, og nútímabúnaður mótaðist. Einnig á öðrum
sviðum en beint þeim hagfræðilegu, hafa þær haft
mikla þýðingu. Þær hafa haft vekjandi áhrif, vakið
menn frá þröngsýni og fastasvefni, til dáða og víðsýnis.
Þær hafa vakið tilverumeðvitund einstaklinganna ,og:
lolcs hafa þær, — er menn aka í skreyttum vögnum frá
einu héraði til annars, með samkomuhaldi ræðum og
söng, — vakið hrifning og eftirtekt inanna, sem áður
voru hlutlausir eða andstæðingar smábændanna, og
stefnu þeirra.“