Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 215
BÚNAÐARRIT
207
Ef hægt er að leysa þetta vandamál á svo einfaldan
hátt, þá væri fundin hagkvæm leið til að framleiða
gott kjöt og til þess að sveitaheimili gætu haft nýmeti
lengi vetrar, því göglin — gæsaungarnir — halda vel
holdum allan veturinn, og litið þarf að bæta þau fyrir
slátrun.
Það er aldagömul staðreynd að sjávargróðurinn er
næringarríkur og hollur, í hófi notaður, en einhæfur.
Nú virðast líkur til að með þessu einhæfa fóðri megi
fylla í mörg þau skörð sem tíðust eru í aðal gripafóðr-
inu, heyunum. — Óþrotleg náma af þessu fóðri er svo
verðmæt, að það á að vera þjóðaráhugi fyrir þvi að
hún notist sem bezt. Það þarf að rannsaka til hlítar,.
hvernig fóðrið verður bezt, sem er unnið úr sjávar-
gróðrinum, svo að það þoli geymslu og verði ódýrt,
og hvernig það notist bezt, sem fóður. Þetta er meira
verk en svo að hægt sé að ætlast til þess af fáum ein-
staklingum að þeir leysi það af höndum. — Rikið þarf
að styðja tilraunina, en krefjast þess að launum, að
fóðrið verði eins gott og hægt er og eins ódýrt og hægt
er, svo að þetta mikla næktabúr notist, og bændurnir
þurfa að reyna fóðrið, reyna það með mörgu móti, fyrst
og fremst i smáskömmtum, og takmark þeirra á að
vera að verja búféð allt þeim vetrardvala, sem hefir
aúðlcennt allan þorra þess á hverjum vetri, síðan farið
var að hafa hér búfé.
Einnig bændurnir við sjóinn gætu haft gagn af þess-
um athugunum. Þeir gætu ef til vill lært hófsemi í
notkun fjörubeitarinnar, og þeir gætu lært eitthvað
um það, hvort réttmætt væri að spara skepnunum
vosið i fjörunum að vetrinum og gera sjávargróðurinn
auðmeltari með þvi að súrsa hann í gryfjum, eins og:
hey, og gefa hann að vetrinum, eftir þörf, á sjávar-
kambinum, eins og stöku fyrirmyndarbændur hafa
gert. Allt er þetta athyglisvert, þó hér sé aðal uinhugs-
unarefnið, hvort skepnurnar sem lifa fjærri sjó vanti