Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 184
B Ú N A Ð A R R I T
17(5
Noregs. Konungurinn tók þessar vörur á sitt borð,
vegna þess að þær þóttu svo góðar. Hið sama sýnir
reynslan nú, að allar búsafurðir, sem framleiddar eru
i Grænlandi, eru sérstaklega góðar. Þegar Hans Egede
kom þangað 1721 voru öll hin fornu býli komin í rústir.
Hann hafði með sér búpening og hugði að byrja þar
búnað að nýju; úr þessum fyrirætlunum varð þó ekki
neilt. Að vísu gerði hann nokkrar tihaunir með garð-
yrkju, sem báru góðan árangur, og sagt er að hann
hafi haft þar nokkra nautgripi, en um verulegan búnað
var eigi að ræða. Eftirkomendur Hans Egede, verzlun-
urstjórar, trúboðar og aðrir embættismenn, reyndu
einnig ýmislegt, er að búnaði laut. Garðrækt reyndu
þeir og svo höfðu þeir oftast 1—2 kýr og nokkrar
geitur. Þetta hafði aðeins þýðingu fyrir hlutaðeigandi
einstaklinga, en það varð tilefni þess, að menn höfðu
trú á möguleikum lil búnaðar. Hinn fyrsti, sem byrj-
aði búnað á Grænlandi, var Norðmaður einn, Anders
Olsen. Hann var giftur grænlenzkri konu og á elliár-
um sínum, eftir að hai'a dvalið lengi á Grænlandi og
verið þar í þjónustu verzlunarinnar á nokkrum stöð-
um, tók hann sér bólstað á hinu forna biskupssetri,
Görðum, einni hinni fegurstu og beztu jörð á Græn-
landi, ])á er uin búnað er að ræða. Anders Olsen reisti
þar bú 1780. Hann hat'ði nokkra nautgripi, sauðfé og
geitur. Eftirkomendur Anders Olsen lifa enn á Görð-
um og eru álitnir dugandi menn. Þar hefir síðan verið
nokkur búpeningur, en í harðindum hefir oft verið á
hangandi hári, að hann hyrfi úr sögunni. Sigurður
Breiðfjörð kom að Görðum 1838, voru þar þá 2 býli,
17 nautgripir og nokkrar geitur og sauðfé. 1854 segir
Rink, að búnaðurinn á Görðum sé í mesta ólagi og það
hafi oft verið mjög tæpt, að nautpeningur hafi eigi
gjörfallið þar. Nú á síðustu árum liefir búnaðurinn á
Görðum tekið miklum framförum, þar eru nú um 1700
sauðfjár, 20 nautgripir, einn hestur, 28 hænsn og 5