Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 282
BÚNAPARRIT
Búpeningssýningar
Almenningi til leiðbeiningar vill Búnaðarfclag íslands l)enda ú
eftirfarandi atriði um búpeningssýningar þær, er það lieldur ár-
lega, samkvæmt iögum nr. 32, 8. sept. 1931, um búfjárrækt.
A. Nautgripasýningar:
Þær skal halda á 5 ára fresti i hverju nautgriparæktarfélagi
(annarsstaðar ekki), enda hafi hlutaðeigandi sveitarstjórnir, eða
nautgriparæktarfélög, sent B. í. skriflega ósk um sýningu fyrir
lok marzmánaðar ár hvert. — Til verðlauna á sýningum þessum
leggur ríkissjóður 50 aura fyrir livern framtalinn nautgrip á sýn-
ingarsvæðinu, samkvæmt síðustu birtum búnaðarskýrsium, gegn
jöfnu tillagi, útvcguðu af sveitarstjórn cða nautgriparæktarfé-
lagi, annarsstaðar frá. — Auk þess greiðast I. og II. verðl. á naut
eingöngu úr ríkissjóði.
B. Hrossasýningar:
Þær sltal lialda í hverri sýslu landsins þriðja hvert ár, enda
hafi hlutaðcigandi sýslunefndir vcitt fé til sýninganna og sýslu-
menn tilkynnt félaginu það, ásamt kosningu sýningarstjóra og
dómnefndarmanna, fyrir aprílmánaðarlok ár hvert. — Til verð-
launa leggur rikissjóður 10 aura tyrir hvert framtalið hross i
sýningarumdæminu, samkvæmt síðustu bir-tum búnaðarskýrsl-
um, þó aldrei minna en 100 kr. til hverrar sýningar, gegn jöfnu
framlagi úr hlutaðeigandi sýslusjóði.
Auk þess greiðir rikissjóður 50 Itr. til viðbótar liverjum I. verðl.
stóðlicstanna. — Jafnframt héraðssýningunum skal gefa eigend-
um fuUorðinna stóðhesta kost á afkvæmasýningum, samkv. nán-
ari ákvæðurri laga um búfjárrælct og tilheyrandi reglugerð. —
C. Ilrútasýningar:
Þær skal halda í einstökum hreppum 4. livert ár, enda hafi hlut-
aðeigandi sveitarstjórnir sent félaginu skriflega ósk um sýn-
ingu fyrir júlímánaðarlok ár hvert. — Til hrútaverðlauna ieggur
ríkissjóður 2 aura fyrir hverja framtalda kind í hrcppnum, sam-
íivæmt siðustu birtum búnaðarskýrslum, gegn jöfnu framlagi,
útvcguðu af sveitarstjórn annarsstaðar frá.