Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 107
BUNAÐARRIT
101
seintekið fjör en að sama skapi öruggt og gott þegar
það er l'engið, og að ættin stækkar fljótt ef hún kemst
í góð lífsskilyrði. Mér þykir hún bezta hrossaættin í
Húnavatnssýslu, og verði einhver ættstuðullinn þar
svo heppinn að fá gott fóstur, þá skal það sannast að
þessum hrossum er eðlilegur mikill vöxtur og þá þykja
þau héraðsprýði.
VII. Einstakir stóðhestar.
1. Nr. 92, I'uni frá Hvassafelli, f. 1918. — Kaganar-
hóli 1923: Rauður, 137 151 18,0 24,0. — For.
Ljómi frá Möðrufelli, ekki upplýst um móðurina.
Eig. Benedikt Júlíusson, Hvassafelli, Eyjafirði.
1924 var hann seldur Jóni Benediktssyni, Húns-
stöðum og 1931 seldi hann Funa Frossaræktarfé-
lagi Skefilsstaðahrepps, sem á hann enn. — I.
verðl. 1923, ’25 ’28, ’34 og ’38. II. verðl. fyrir af-
kvæmi 1931 og ’38.
Funi er fríður hestur og var góður reiðhestur.
Undan honum hafa komið mörg fögur hross og
góð, en sá er helztur ljóður á honum sem kyn-
bótahesti, að áhrifa hans á afkvæmin gætir töluvert
mismikið.
2. Nr. 140, Nasi, Vindheimum, f. 1930. — Stokkhólma
1938: Rauðnösóttur, 137—158—18,0—24,0. — For.
Rauður, Svartárdal og Gráhlesa, Vindheimum. —
Eig. Magnús Sigmundsson, Vindheimum. — I.
verðl. 1934 og ’38.
Nasi er fríður hestur, byggingin sérlega fín og
þétt og góðir fætur. Hann er ekki taminn, en auð-
séð er þó að hann er harður og þolinn.
3. Nr. 171, Starkaður, Bjarnastaðahlíð, f. 1931. —
Stokkhólma 1938: Jarpur, með glitrandi svart fax
og tagl, 138—156—18,0—25,0. For. Jarpur, Reykj-
arhóli og Sjarna, Bjarnastaðahlíð. Eig. Guð-
L