Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 251
BÚNAÐARRIT
243
straum af kostnaði þeim, er yrði við byggingu vöru-
húss þar á staðnum. Stóðu viðskipti þessi nokkur ár,
og borguðu menn vörur þessar aðallega með sauðum
á fæti.
Árið 1888 kom félagið á heyjaásetnings- og búpen-
ingsskoðun innan félagsins. Voru verðlaun veitt úr
sjóði félagsins fyrir beztu hirðingu búfjár og umgang
heyja. Hafði félagið þetta með höndum mörg ár og
varði miklu til verðlauna.
Mönnum þeim, sem kjörnir voru til skoðana þessara
og ásetnings, var sett erindisbréf, sem bókfært er í
gerðabók félagsins. Sýnir erindisbréf þetta athygli og
nákvæmni þeirra, sem með stjórn félagsins fóru. Þykir
því hlýða að birta hér ofurlítið sýnishorn af því.
3. gr. erindisbréfsins hljóðar svo:
„í þessari fyrri skoðunarferð sinni, skulu skoðun-
armenn nákvæmlega kynna sér heybirgðir félags-
manna, heyverkun og heygæði, að því leyti sem unnt
er; skepnufjölda, er á vetur skal setja hjá hverjum
einum, undirbúning fénaðarins undir veturinn, hvort
er í góðum holdum eða eigi, hvort útlit sé til óþrifa í
sauðfé. Húsavist fénaðarins: hvort húsrúm sé nægi-
legt, gluggar nægilegir á húsum, dyraumbúningur í
góðu lagi, svo varnað geti súgvindum og innfoki, ásamt
fleiru, er eftirlits kynni að þurfa, en sem eigi virðist
nauðsynlegt upp að telja.
4. gr. Nú er í sumu tilliti ábótavant með það, sem
3. gr. um ræðir, og skulu þá sltoðunarmenn vanda um
það. Komist þeir að því, að athuguðum öllum kring-
umstæðum, að heybirgðir munu ónógar verða, til að
mæta liörðum vetri, skulu þeir ítarlega og með fullu
l'ylgi ráðleggja hlutaðeigandi fjáreigendum að lóga svo
miklu af skepnum sinum í tæka tíð, að þeir hafi nægi-
legt fóður fyrir liinar í hörðum vetri og vori, og geti
farið svo með þær, að von sé um nokkurnveginn góðan
arð af þeim.