Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 149
BÚNAÐARRIT
141
Eins og reikningurinn ber með sér, er búféð lágt
inetið, og hið sama er að segja um jörðina. Fasteigna-
inat jarðanna er venjulega 20—30% undir gangverði
jarða á sama tíma og metið er, en mat fer fram fimmta
hvert ár. Bóndinn er því varla svo snauður sem reikn-
ingurinn ber með sér.
Kynnisfarir.
Þann 10. júlí 1884 ferðuðust 8 smábændur frá Sjá-
landi yfir á Fjón, til þess að sjá og skoða fyrirmyndar
smábýlabúnað. Ferð þessi stóð yfir í fjóra daga. Síðar
um sumarið fór annar hópur i leiðangur sem varaði
5 daga. Þetta var í fyrsta sinn sem menn höfðu kynni
af, að smábændur færu í ferðalög, í þvi skyni að sjá
og læra eitthvað nýtt af sama tagi og það, sem þeir
sjálfir unnu að. Fyrirfram höfðu menn óljóst hugboð
um, að í slikri för mundi eitthvað það nýtt að sjá, sem
læra mætti af.
Byrjunin var í smáum stíl, en eins og steinninn sem
fellur í vatnið myndar marga hringi, sem breiðast til
allra liliða, svo fór einnig hér.
Skjótt reis upp öflug hreyfing, sem vann að kappi
að því, að sem flestir þeirra, er fylltu hóp hinni minni
jarðnytjenda, ættu kost á að hreyfa sig af þúfunni sem
þeir sátu á ár eftir ár — hefja vængi til flugs — og fá
að sjá og skoða sitt eigið land, og búreksturinn lijá
stéttarbræðrum sínum í öðrum landslilutum.
Forgöngumaður þessara kynnisfara var alþýðuskóla-
kennari. Sjálfur hafði hann verið sein farfugl, kom-
andi og farandi vítt um landið, og fengið augun opin
fyrir því, hve mikill inunur var á búrekstri og um-
gengni allri meðal liinna ýmsu smábænda, og hefir
hann sjálfur sagt svo frá, að hann þrátt hafi brotið
heilann um, hvernig bezt væri að brjóta hleklc daglegs
A'ana og finna upp eitthvað nýtt og gagnlegt, þar sem