Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 104
98
B Ú N A 1) A R R I T
Nafnkenndastur sona hans er Þokki, nr. 134, f. 1927..
MóÖir hans var Snælda frá Brún í Svartárdal, eig. Sig-
urður Jónsson frá Brún. Uppvaxtarárin var Þokkki á
ýmsum stöðum, lengst af fyrir norðan, en haustið 1932:
var hann seldur Hrossaræktarfél. Mýrdæla, og hefir
það notað hann síðan. 1937 hlaut hann þar I. verðl..
fyrir afkvæmi. Ég hefi áður vikið að Þokka, er ég sagði
frá þátttöku Mýrdæla í sýningunni að Þjórsártúni 7..
júlí s. 1., og vísa þangað. — Af þessum sonum Þolcka*
sem hér eru taldir, þykir mér Svalur á Guðlaugsstöð-
um myndarlegastur, en Gráni á Brandsstöðum fríð-
astur. Allir eru þeir prýðilegir hestar og líkjast föður
sínum, einkum um hrjóstbyggingu og fætur. Ættin er
stórvaxin, þróttmikil og þolin, og margt af henni hefir
góðan gang og vilja.
VI. Hindisvíkurætt.
1. Nr. 153, Eldur, Grímstungu, f. 1924. — Undirfells-
rétt 1934: Rauður, 138—160—17,5—24,0. — For.
Rauður, Þorgrimsstöðum, undan Stjarna, Hindis-
vik, nr. 118, og Skjónu frá Dæli, en móðir Elds er
Löpp frá Hnausum. Eig. Lárus Björnsson, Gríms-
tungu. — I. verðl. 1934 og 1938, og I. verðl. fyrir
afkvæmi 1934.
Eldur er mjög fríður og l'jörlegur, hefir fína reið-
hestsbyggingu og léttar hreyfingar. Hann likist að.
mestu Hindisvíkurætt og margt barna hans.
2. Nr. 167, Þytur, Kristnesi, f. 1934. — Reistarárrétt
1938: Rauður, 139—155—18,0—24,0. -—- For. Eldur,.
Grimstungu, nr. 153, og Snælda frá Brún. Eig. Sig-
urður Jónsson frá Brún, Kristnesi. — I. verðl. 1938.
Þytur er fríður, reiðhestslegur og léttur í hreyf-
ingum. Hann lílcist mest i Hindisvíkurætt. Móður-
ættin er einnig góð. Þó gætir hennar elclci milcið
í útliti Þyts. Sama er að segja um liálfbróðir hans*