Búnaðarrit - 01.01.1938, Blaðsíða 165
B U N A Ð A IIIII T
157
þeirra hópi, á rót sína að rekja til skólagöngunnar,
þátttöku 1 félagslífi og félagsstarfsemi, og svo sjálfs-
menntunar, sem byggð verður á þann grunn, sem skól-
inn lagði.
Samvinnuhreyfingin hefir liaft i för með sér bæði
efnalegar og menningarlegar framfarir, sem greinilegar
hafa sett merki sitt á þessa stétt þjóðfélagsins en
nokkra aðra.
Þegar Búnaðarháskólinn í Kaupmannahöfn á sínum
tíma var stofnaður, hófst ný alda, sem skjótt breiddist
yfir landið. Nýjar aðferðir voru prófaðar, þær sem
ekki hæfðu, voru dauðadæmdar, liinar, sem nothæfar
þóttu voru prófaðar á vísindalegum grundvelli, og síðar
færðar inn í búnaðinn á sveitaheimilunum vítt um
landið. Smábændurnir fóru þessa mjög á mis i fyrstu,
en á seinni árum hafa þeir l'engið vænan skerl' fræðslu
og hollræða úr þeirri átt, og meðal annars þess vegna
•er aðstaða þeirra í þjóðfélaginu allt önnur nú en fyrr.
Jafnskjótt og ný leið er sannprófuð og nýtt verkefni
eða vél kemur á markaðinn, liggur fyrir að athuga
hvort liinir ininni bændur geti notað sér slíkar nýjung-
ar á sama hátt og þeir stærri.
Nú þekkist það varla lengur, að menn hangi í göml-
um vana kynslóð eltir kynslóð, menn láta sér ekki
nægja að plægja, sá og uppskera, þegar jörðinni og
veðrinu þóknast að gefa þroskað korn, eins og gerðist
í gamla daga. Með ráðuin og dáð er sáð og uppskorið
það, sein hentast er á hverjum tíma við staðbundin
skilyrði. Vísindin koma líka heirn á hæi kotunganna,
þau koma á prenti og eru lesin með gaumgæfni, eins
og allt sem styður atvinnuveginn og tækni þá, sem lion-
um tilheyrir, og þau koma inn í daglegu störfin með
ráðunautunum og öðrum umsjónarmönnum og for-
stöðumönnum skóla og tilraunastöðva.
Þó koma þau ekki, og mega aldrei koina, sem þurrar
formúlur, sem enginn skilur, heldur sein lifandi túlkun