Hlín - 01.01.1961, Blaðsíða 82
80
Hlin
HÚSMÆÐRAFRÆÐSLA í HÚNAVERI 1960.
Á síðastliðnu voru áttuni við, konur hjer í austustu
hreppum Austur-Húnavatnssýslu, kost á því að fá heim-
ilisráðunaut, Steinunni Ingimundardóttur, til að halda
með okkur námskeið. En hún hefur, eins og kunnugt er,
starfað um skeið hjá Kvenfjelagasambandi íslands. Var
þetta fyrirbæri okkur mjög kærkomið, enda vart nokkuð,
sem samtökin geta gert fyrir kvenfjelögin úti um hinar
dreifðu bygðir, sem kemur sjer betur en að meðlimir
þeirra eigi kost á fræðslu hjá fjölhæfum og vel mentuð-
um kennurum.
Það má segja, að námskeiðinu væri skipt í þrjá liði.
Þann 7. maí var boðað til sameiginlegs fræðslufundar
í Húnaveri fyrir konur úr Bólstaðarhl íðar-, Svínavatns-
og Engihlíðarhreppum, þareð þar er rafmagn fyrir hendi,
er hæfði til að sýna þær kvikmyndir, sem ráðunauturinn
var með. Hjelt Steinunn skemtilegt og fróðlegt erindi og
sýndi kvikmyndir. Var góður rómur gerður að hvoru-
tveggja. Mættar voru 27 konur. Var svo ekki meira að gert
að sinni.
Tími sá, er í hönd fór, var ekki þægilegur fyrir okkur
konurnar. Margvíslegar annir hömluðu, og svo þurfti
kennarinn líka að fara burt af sambandssvæðinu í bili.
Næst kom svo kenslukonan til okkar 27. maí. Þá var
hún með sýnikenslu á hænsna- og kálfakjötsrjettum, og
stóð kenslan í tvo daga.
Auk þess voru okkur sýndar fræðslukvikmyndir. Það
var sjerlega vel til fallið fanst okkur, að velja þessar fæðu-
tegundir, enda gert í samráði við okkur, því bæði er það,
að þær tilfallast oftar en flest annað, og einnig fellur sum-
um ekki vel að neyta þeirra, og því sjálfsagt ekki ævinlega
notfærð sjer sem skildi, a. m. k. ekki livað snertir kjöt af
fullorðnum hænsnum.
Við ljetum fara vel um okkur, þar sem við sátum og
höfðumst ekkert að annað en fylgjast með orðum og at-