Hlín - 01.01.1961, Blaðsíða 157
Hlin
155
fyrir aÖ þið urðuð viö beiðni minni um að mæta lijer á fundi. Jeg
lief oft liugleitt það, þegar jeg lief komið liingað að Laugarvatni,
eða verið á fúndi Sambands sunnlenskra kvenna á Selfossi, að það
væri einkennilegt, að hjer í Laugardalnum fagra væri ekki kven-
fjelag, eins og í öðrum hreppum sýslunnar. Þó að svo mætti sýnast,
að mjer kæmi það nú lítið við, hvort hjer væri kenfjelag eða ekki,
þá er það nú svona, að jeg hef verið að skifta mjer þó nokkuð að fje-
lagsmálum íslcúiskra kvenna, lief stofnað mörg kvenfjelög víðs vegar
um landið, jafnvel kvennasambönd. Jeg vona að þið fyrirgefið mjer,
að jeg er að skifta mjer af þessu kvenfjelagsleysi ykkar, góðu konur,
og því vil jeg bæta við að cnginn, hvorki karl nje kona, hafa beðið
mig um að gera þclta. En skelfing væri það nú gaman og fallega
gert af ykkur, að lofa mjer á gamals aldri að eiga því láni að fagna,
að stofna kvenfjelag á þessum fagra stað. Við vitum nú öll, aö kven-
fjelögin á íslandi hafa unnið margt þarft verk fyrir land og lýð,
og þær segjast hafa skemtun af fjelagsskapnum, konurnar. Þetta tel
jeg víst að yrði niðurstaðan líka hjer, ef til kæmi. Anægjuleg sam-
vinna geri jeg ráð fyrir að yrði við Samband sunnlenskra k'venna,
sem svo mörgu gagnlegu hefur til leiðar komið. — Jeg ætla með
nokkrum orðum að gera grein fyrir, hvaða aðferð jeg haföi við
stofnun kvenfjelaga á ferðum mínum um landið: Konurnar voru
hvattar til fjelagsskapar með smáerindum. Heimakonurnar gerðu
svo grein fyrir sinni skoöun á málinu. Smá-handavinnusýningar
voru oftast hafðar með. Að lokum var svo kosin þriggja kvenna
undirbúningsnefnd, sem hafði það þrefalda hlutverk að boða til
stofnfundar, scmja lagafrumvarp og aíla fjelaginu fleiri meðlima.
Þetta tókst víðast vel, og lifa fjelög þessi góðu lífi og hafa starfaö
að mörgum þörfum málum livert í sínu umliverfi. — Nú þætti mjer
vænt um það, góðu konur, að þið lofuðuð mjer að heyra álit ykkar
á málinu. — H. B. (Fjelagið var stofnað við góðar undirtektir.)
María llögnvaldsdúttir, Sauðárkróki, óskar leiðrjettingar á 1. cr-
indi kvæðisins „Kvenfjelag Sáuðárkróks 60 ára“, sem birtist f 42.
árgangi Hlínar, þannig:
„Sáuð þið fyrir sextíu árunt
samtaka skyldulið
örvona berjast eins og hetjur
allsleysis fátækt við.
Ekkju, sem liópinn annast þurfti,
öreiga ganga veg,
móðir, sem ljet að litlu barni,
lúin og fátækleg."