Hlín - 01.01.1961, Qupperneq 103
Hlín
101
Húnaflóa með efnivið í verslunarhús á Skeljavík, væri verslunar-
staður við Steingrímsfjörð sennilega á Skeljavikurgrundum, en ekki
í Hólmavík eins og nú er.
Nokkru fyrir aldamótin fór svo að koma hreyfing um stofnun
kaupfjelags. Nokkrir bændur í Kirkjubólslneppi og nágrenni komu
saman að Heydalsá 29. des. 1898 og stofnuðu Verslunarfjelag Stein-
grímsfjarðar. Fyrstu stjórn skipa: Guðjón Guðlaugsson, bóndi á
Ljúfustöðum í Fellslireppi, síðar alþingismaður Strandamanna og
fyrsti kaupfjelagsstjóri fjelagsins, Björn Halldórsson, bóndi, Smá-
hömrum, varaformaður, og Guðmundur Bárðarson, bóndi, Kolla-
fjarðarnesi, meðstjórnandi. Endurskoðendur: síra Arnór Árnason,
Felli, og Grímur Ormsson, búsettur hjer í sveit. Stjórnin annaðist
fyrstu árin rekstur fjelagsins.
Með stofnun Versunarfjelags Steingrímsfjarðar bötnuðu mjög
verslunarhættir hjer við Steingrímsfjörð.
Þá skal að nokkru getið um baráttu manna fyrir aukinni alþýðu-
mentun nokkru fyrir aldamótin og stofnun Fleydalsárskóla hjer í
hreppi. Hann á sjer merka sögu, og segir þar frá framsýni, áhuga og
dugnaði fyrirrennara okkar á alþýðumentun. Mun Heydalsárskól-
inn vera fyrsti heimavistarskóli unglinga í sveit hjer á landi. Til-
drög stofnunar hans má rckja til hins merka Kollabúðarfundar í
Barðastrandarsýslu, sem haldinn var árið 1891. Fund þennan sóttu
ýmsir merkir menn og þjóðkunnir úr þremur Vestfjarðasýslum:
Barðastrandar-, ísafjarðar- og Strandasýsum, þ. e. hinu forna Þorska-
fjarðarþingi. Úr Strandasýslu mættu meðal annara Arnór Árnason,
prestur að Felli í Kollafirði, Guðjón Guðlaugsson, bóndi að Ljúfu-
stöðum í Kollafirði, síðar þingmaður Strandamanna, eins og fyr
segir, og Ásgeir Sigurðsson, bóndi að Heydalsá í Kirkjubólshreppi.
Á fundinum var einkum rætt um stjórnmál, enda var hann undir-
búningsfundur væntanlegs Þingvallafundar þá um sumarið og næsta
Alþingis. Auk stjórnmálanna voru þarna rædd ýmis önnur mál,
meðal annars alþýðumentunarmalið. Urðu um það skiftar skoðanir,
á hvern hátt og með hvaða ráðum alþýðumentunin yrði bætt, svo
að nokkru gagni yrði, með viðráðanlegum kostnaði. Ásgeir Sigurðs-
son frá Heydalsá bar þar fram tillögu þess efnis, að æskilegt væri
að í hverri sýslu yrði komið upp skóla handa námfúsum unglingum,
sem komnir væru yfir fermingu.
Síra Arnór lagði hugmyndinni eindregið fylgi. Nokkrar umræður
urðu um málið, litlum eða engum andmælum hreyft, en engin á-
kvörðun tekin. Þótt alþýðumentunarmálinu væri ekki meiri gaumur
gefinn á Kollabúðarfundinum en raun ber vitni um, var það þar
með alls ekki úr hug fruminælenda og tillögumanns. Það reyndist
líka svo, að Ásgeiri Sigurðssyni, bónda að Heydalsá og ýmsum áhuga-