Hlín - 01.01.1961, Blaðsíða 142
Nýárið 1960,
Drottinn, lijálpræði rnitt, þú ert líf mitt og Ijós,
þú ert læknir minn, styrkur og náð.
Þú ert rjettlæti mitt, þú ert hjálp mín og lirós,
þú ert huggun mín, athvarf og ráð.
Drottinn, vísdómur minn, þú ert viskunnar lind,
sannur vinur og fræðari kær.
Þú ert helgari minn, er mig hreinsar af synd,
þú ert himinsól kærleikans skær.
Þú ert leiðtogi minn, og þjer lofgjörðin ber,
mikli lausnari, frelsari minn!
Ó, minn Drottinn og Guð, hversu dásamleg er
heilög dýrðin við konungsstól þinn.
Særn. G. Jóhannesson.
ÚR LJÓÐABRÉFI TIL LÍTILLAR STÚLKU
Lærðu að þekkja llfsins mörgu vegi,
lærðu að sigra alt með helgri ró,
lærðu að þjóna Drottni á hverjum degi,
Drottins nafn þjer veitir gæði nóg.
Bið þú Guð að blessa hagi þína,
bið þú Guð um styrk að gæta þín.
Guðs i faðmi góðu börnin skína,
er Guð þau tekur aftur heim til sín.
Verði Guð þjer vörn í lífi og dauða,
verði Guð þjer skjöldur fyr og síð,
verndi Guð þig vel í kjörum nauða,
verndi hann þig alla lifsins tið!
/. Á.