Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 52
2
kennslu raungreina og stærðfræði, ákvað að fara aftur að kenna þessar námsgreinar í
grunnskóla til að öðlast ferska reynslu af því hvernig það er að kenna samkvæmt þeim
kenningum sem hann hefur verið að þróa. Meðan á rannsókninni stóð hélt Norfield
nákvæma dagbók. Hann hafði Loughran sér til aðstoðar sem rannsakanda sem fylgd-
ist með í kennslustundum og tók viðtöl við nemendur hans og þeir ræddu saman um
kennsluna.
Rannsóknir á eigin starfi hafa farið vaxandi samfara því að margir kennarar sem
starfa við kennaramenntun hafa endurskoðað tilhögun kennslu sinnar.
ígrundun um eigið starf (e. reflection on practice) og rannsóknir á eigin starfi
(e. selfstudy) verða stöðugt mikilvægari þættir í viðleitni þeirra sem fást við að
kenna um kennslu til að gaumgæfa betur hugmyndir sínar um kennslufræði.
Þær tengjast hugmyndum um hvernig þekking getur mótast hjá einstaklingi
sem reynir að skilja eigin reynslu. Þegar eigið starf er rannsakað leiðir það
stundum til þess að sá sem það gerir finnst hann vera það sem Whitehead (1993)
skilgreinir sem lifandi þversögn (e. living contradiction) (Loughran og Norfield
1998, bls. 7).
Túlkun Whiteheads, sem þeir Loughran og Norfield vísa til, grundvallast á skilningi
og viðurkenningu á að hugmyndir og væntingar kennara um kennsluna eru ekki
alltaf í samræmi við kennsluhætti þeirra. við rannsóknir á eigin starfi er mikilvægt að
gera sér grein fyrir þessu misræmi á milli hugmynda og framkvæmdar og bregðast
við því.
Þetta misræmi á milli hugmynda og framkvæmdar hef ég verið mjög meðvituð um
allt frá því ég byrjaði fyrst að kenna og það hefur valdið mér miklum áhyggjum hve
oft ég hef gert eitthvað í kennslu allt öðru vísi en ég hafði hugsað mér að gera eða vildi
gera. Ég reyndi að leita í þá þekkingu sem ég hafði á námi og kennslu til að hjálpa mér
að finna leiðir til að koma í veg fyrir að ég gerði ómeðvitað eitthvað sem ég ætlaði mér
ekki. En eftir að ég fór að gera mér grein fyrir hvernig ígrundun um eigið starf getur
hjálpað við að taka ákvarðanir um kennslu fannst mér ég ráða betur við að leysa þetta
vandamál. Því má segja að það hafi verið einn aðalhvati þess að ég fór að skoða eigin
kennslu.
Loughran og Norfield (1998) leggja áherslu á að við rannsóknir á eigin starfi er sjón-
arhornið á kennsluna sjálfa, það sem kennarinn gerir og við hvaða aðstæður kennsl-
an á sér stað. Það er erfitt fyrir þann sem er að rannsaka eigið starf að skoða það frá
nýju sjónarhorni og vera alltaf vakandi fyrir að túlka það sem gerist í kennslunni á
gagnrýninn hátt. Þá er nauðsynlegt að geta fengið sjónarhorn annarra á ferlið. Sá sem
rannsakar eigið starf þarf að hafa trú á sjálfum sér og ígrunda stöðugt það sem fram
fer og draga af því lærdóm til að byggja á við framhaldið. varast þarf að einblína um
of á það sem miður fer.
við greiningu á gögnum mínum hafa viðmið Loughran og Norfield hjálpað mér.
Ég hef reynt að skoða reynslu mína frá sem ólíkustum sjónarhornum og rætt hana við
aðra kennara. Þá hef ég sýnt öðrum brot úr myndbandsupptökum mínum og rætt um
það sem þar kemur fram. Með því hef ég fengið sjónarhorn annarra á það sem gerðist
AÐ LæRA AF E IG In KEnnSLU