Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 55
Seinna kom ég með tólfflötung inn í skólastofuna og við rannsökuðum hann og
ræddum hvers vegna framleiðendur fótbolta velja að raða saman bæði fimm- og sex-
hyrningum í stað þess að nota einungis fimmhyrninga. Nemendur áttuðu sig fljótt á
því að yfirborð fótboltans verður miklu ávalara með því að nota bæði formin en ef
eingöngu eru notaðir fimmhyrningar. Þessi rannsókn varð til þess að við ákváðum
að búa til páskakörfu úr fimmhyrningum. Karfan var búin til úr sex fimmhyrningum
sem saman mynduðu hálfan tólfflötung.
Áhugi nemenda á marghyrningum og einkennum þeirra leiddi til þess að ég ákvað
að gefa þeim tækifæri til að rannsaka þá nánar. Ég lagði fyrir þá verkefni þar sem tveir
og tveir unnu saman. Þeir höfðu aðgang að pappaformum sem voru reglulegir marg-
hyrningar að lögun og voru hliðar allra þeirra jafn langar. Þar var að finna reglulega
þrí-, fer- fimm-, sex- átt- og tólfhyrninga. Fyrirmælin sem nemendur fengu voru að
þekja blað í stærðinni a3 með því að nota eina eða tvær gerðir af pappaformum. Þegar
þeir hefðu lokið við að þekja blaðið væri þeim svo frjálst að lita það og skreyta eins og
þeir vildu. við höfðum rætt talsvert um hornastærðir en ekki mælt horn. Nemendur
höfðu þó gert rannsóknir á því hvar rétt horn er að finna og einnig leitað eftir hvössum
og gleiðum hornum. Með því að hvetja þá til að velja sjálfir hvort þeir vildu nota eina
eða tvær gerðir af marghyrningum var ég að örva þá til að gera nánari rannsóknir á
eiginleikum marghyrninganna.
Það var gaman að fylgjast með hópnum því öll pörin byrjuðu á að skoða öll
pappaformin og rannsaka þau áður en þau hófust handa um að strika kringum form-
in til að þekja blaðið sitt. Birna og Gyða völdu sér þríhyrning og ferning. Þær byrjuðu
á að raða þeim hlið við hlið, þríhyrningi og ferningi til skiptis. Þær sáu að þá mynd-
aðist bogi sem að lokum tengdist saman í hring. Inni í hringnum myndaðist sexhyrn-
ingur sem þær fylltu með þríhyrningum. Stígur og Leifur völdu tólfhyrninga. Þeir
sáu fljótt að það myndaðist þríhyrningur milli þeirra og notuðu því líka þríhyrning.
Þeim fannst flöturinn sem tólfhyrningurinn þakti svo stór að þeir ákváðu að raða þrí-
hyrningum inn í hann til að reyna að fylla hann. Þeir voru ekki mjög nákvæmir við
teikninguna og fljótlega lentu þeir í vandræðum með að fylla flötinn. Ég benti þeim á
að skoða mynstrið sem myndaðist inni í tólfhyrningnum og spurði þá hvort þeir gætu
nýtt sér eitthvert annað form til þess að hjálpa sér við teikninguna. Þeir skildu ekki
hvað ég var að fara svo ég benti þeim á að ná sér í ferning og nýta hann til að hjálpa
sér við að fylla tólfhyrninginn. Þeir voru fljótir að laga myndina sína þegar þeir sáu
hvernig þríhyrningarnir og ferningarnir röðuðust saman og fylltu tólfhyrninginn.
Nemendur kynntu verkefni sín fyrir bekkjarfélögunum við lok þess. við kynning-
una kom greinilega í ljós hver skilningur þeirra var á verkefninu og flestir notuðu
hugtök stærðfræðinnar þegar þeir útskýrðu val sitt á marghyrningum. Þeir lýstu því
hvernig þeir höfðu prófað að raða ólíkum marghyrningum, hvaða vandamál komu
upp og hvernig þeir höfðu að lokum valið að þekja blað sitt. Það var líka gaman að
heyra um rökstuðning þeirra fyrir litavali og hvernig þeir nýttu liti til að kalla fram
mynstur og draga fram einkenni marghyrninganna sem þeir höfðu valið. Þegar Stíg-
ur og Leifur kynntu sína mynd sögðu þeir frá þeim vanda sem þeir lentu í og að
kennarinn hefði gefið þeim leyfi til að nota þrjú form til að geta lokið við að fylla tólf-
JÓnÍnA VALA KRISTInSDÓTTIR