Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 61

Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 61
61 minni þá vegna þess að þegar ég fór að reyna að setja mig í spor nemenda minna og skilja hvað þeir voru að hugsa komu þessi minningabrot upp í hugann. Þau kölluðu á að ég ynni úr reynslu minni af eigin námi, nýtti mér hana til að skilja nemendur mína betur og velja viðfangsefni sem mér fannst að gætu verið gagnleg við stærðfræðinám- ið. Sú úrvinnsla hafði ótvírætt áhrif á þróun mína. Ég greini einnig frá því hvernig fyrri þekking mín og reynsla af kennslu varð til þess að ég ákvað að reyna að vinna markvisst að því að þróa kennsluhætti mína í stærðfræði. Þá kemur fram hvernig nýjar rannsóknir á stærðfræðinámi og þróun kennara í starfi nýttust mér í kennslunni og einnig samræður mínar við aðra, bæði kennara og foreldra nemenda minna, um hugmyndir mínar. Dæmin sem ég kaus að gefa eru lýsandi fyrir þá þróun sem ég hef greint á viðhorf- um mínum og vinnubrögðum. Þeim er ætlað að gefa mynd af glímu minni við að rannsaka eigin kennslu (Bullough og Pinnegar, 2001). Frásagnirnar af rúmfræðirann- sóknum með nemendum í fjórða bekk sýna hvernig ígrundun mín á því sem átti sér stað í kennslustofunni leiddi til þess að ég breytti áherslum í stærðfræðikennslunni (Loughran og Norfield, 1998). Þegar nemendur báru með sér nýjar hugmyndir inn í skólastofuna eða sáu viðfangsefnin í öðru ljósi en ég reyndi ég að notfæra mér hug- myndir þeirra til að dýpka umræðuna þannig að hún gagnaðist bæði mér og þeim við nám okkar. Þegar ég tók ákvörðun um hvers konar verkefni ég vildi leggja fyrir nemendur notfærði ég mér hugmyndir þeirra bæði varðandi vinnubrögð og inntak. Ég brást oft samstundis við hugmyndum nemenda og notfærði mér þær til að beina sjónum að áhugaverðum hliðum stærðfræðinnar. Ég tók ákvarðanir um kennsluna á grundvelli ígrundunar í kennslustundum og notfærði mér við það þekkingu mína á námi barna og stærðfræðimenntun. Dæmin um hvernig áherslan í umræðum um heimaverkefni breyttist eru lýsandi fyrir stöðuga ígrundun mína á eðli samræðnanna og það hvernig ég nýtti mér það sem börnin báru með sér í skólann til að taka ákvarð- anir um kennsluna. Þessi þróun er í samræmi við kenningar Jaworski og Schön um fagmenn sem ígrunda starf sitt (Jaworski, 1998; Schön 1983, 1987). Áhugi minn á stærðfræði auðveldaði mér að bregðast við hugmyndum barnanna. Ég átti auðvelt með að greina þá stærðfræði sem bjó að baki hugmyndum þeirra og nýta þær til að skapa nýjar aðstæður til náms. Dæmi um það eru viðbrögð mín við lausn Leifs á þrautinni um kvöldverðarborðið. Þrautin var ekki um rúmfræði en hann leysti hana með teikningu af fimmhyrningi og fimmarma stjörnu. Ég ákvað samstundis að nýta mér lausn hans til frekari rannsókna á marghyrningum og hjálpa nemendum þannig að tengja þessa nýju reynslu við fyrri rannsóknir sínar. í greiningu minni á þróun kennslunnar sá ég að eftir því sem ég ígrundaði reynslu mína betur og reyndi að bregðast við því sem ég lærði af samskiptum við nemendur við skipulagningu hennar, þeim mun auðveldara átti ég með að taka ígrundaðar ákvarðanir í kennslustundum (Jaworski, 1998). Þetta dæmi sýnir einnig að það voru ekki bara börnin sem lærðu af því að taka þátt í vinnunni heldur líka ég (Wood o.fl 1991; Jaworski, 1996). Þegar Björn kom með fótboltann inn í kennslustofuna gerði ég mér grein fyrir að mér hafði tekist að vekja áhuga nemenda á marghyrningum. Ég var ánægð að sjá hve fljótir þeir voru að tengja reynslu sína af því að þekja með marghyrningum við rannsóknirnar á JÓnÍnA VALA KRISTInSDÓTTIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.