Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Síða 113

Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Síða 113
113 eYg­ló eYJólfSDóttir­ Framhaldsskóli í mótun Spurningunni um framhaldskóla fyrir alla er oft varpað fram en ekki er víst að allir leggi sömu merkingu í hugtakið. Ég ætla að byrja á því að gera grein fyrir skilningi mínum á því, líta til þróunar framhaldsskólans og stöðu hans nú og skýra álit mitt á því hvort hann sé fyrir alla. v­ið lok grunnskóla hafa íslenskir unglingar setið á skólabekk í 10 ár og eru ekki lengur skólaskyldir. Ákveðinn hluti þeirra velur þann kost að hefja ekki nám í fram- haldsskóla eða hverfa fljótlega frá námi. Til þessa geta legið ýmsar ástæður. Fram- haldsskóli hentar ekki þessum nemendum. Námsbrautir á framhaldsskólastigi eru margar og ólíkar. Enginn einn skóli getur starfrækt nema hluta þeirra. Þar af leiðir að einstakir skólar hafa mismunandi áherslur og ákveðna sérhæfingu. Litið er á skólastigið sem heild þegar skilgreint er hvað sé skóli fyrir alla. Framhaldsskóli fyrir alla innritar ekki hinn breiða hóp nemenda án þess að veita nám og kennslu við hæfi. Framhaldsskóli sem vill mennta alla hefur námsframboð og kennslufyrirkomulag sem mætir þörfum mjög breiðs hóps, hvernig sem námsgetu einstaklinganna innan hans er háttað. Framhaldsskóli fyrir alla ræktar tengslin við atvinnulífið og við æðri skólastig. Hann þjálfar nemendur til raunverulegra starfa eða til frekara náms. í ljósi þessa byggist viðhorf mitt á því að framhaldsskóli fyrir alla merki ekki ein- staka skóla heldur skólastig sem gefur greiða leið til starfa eða til frekara náms. allir sem áhuga hafa geta innritast í framhaldsskóla fyrir alla og þeir sem leggja sig fram geta lokið skilgreindu námi. Framhaldsskólinn hefur þróast mjög hratt á undanförnum áratugum. Langt að baki er löngun til menntunar sem ekki gat ræst og langt er síðan lítill piltur byrgði sig milli þúfna þegar skólapiltar riðu til skóla. Nú þarf nánast enginn að standa í sporum móður hans sem fann þarna sárast fyrir fátækt sinni. að langa til að læra en fá það ekki vegna ytri aðstæðna er liðin tíð sem nútímafólk les um í bókum. Nú er sjálfsagt að nánast allir fari í framhaldsskóla og stór hópur haldi áfram í háskóla. Þetta hefur gert miklar kröfur til skólanna sem hafa á skömmum tíma fengið það hlutverk að mæta fjölbreyttum þörfum allra ungmenna. Þróun framhaldsskólans var hröð eftir miðja síðustu öld. Batnandi efnahagur al- mennings og stækkandi árgangar ungmenna kölluðu á meiri menntun. Landsprófið, sem var þröng sía inn í menntaskólanám, var afnumið og á tiltölulega skömmum tíma urðu stórfelldar breytingar á framhaldsskólastiginu eins og öðrum sviðum mennta- kerfisins. Nýjum hugmyndum um samþættan framhaldsskóla eða fjölbrautaskóla var tekið fagnandi. Þessi skólagerð byggði á því að nemendur í bóknámi og verknámi Uppeldi og menntun 1. árgangur 1. hefti, 2006
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.