Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 29
Landbúnaðarráðuneytið hefur barist hart fyrir því, að þessu máli verði
kippt í lag á þann veg, að ríkissjóður greiði þessar lífeyrishækkanir beint
eins og gert er, þegar um ríkisstofnanir er að ræða. A það hefur fjármála-
ráðuneytið enn ekki fallist, heldur ætlast það til, að B.í. greiði þetta af
fjárveitingu sinni.
Annar þáttur þessa máls er sá, sem snýr að búnaðarsamböndunum. Þar
er fyrst og fremst um það að ræða að fá ríkið til að greiða þessar hækkanir að
sínum hluta, þ.e. sem svarar til 65% af launum ráðunauta og frjótækna.
Búnaðarsamböndin hafa þegar greitt sem svarar 35% það er af sínum
launahlut.
Bœndabókhald. Forritið Búbót, semB.Í. létgera,vartilbúiðíendanlegri
mynd á árinu. Ketill A. Hannesson hefur einkum unnið að útbreiðslu
bændabókhalds og leiðbeiningum um notkun forritsins, og vísast hér til
skýrslu hans.
Tölvudeild og tölvumál. Mannabreytingar urðu miklar á árinu. Pétur Þór
Jónasson lét af starfi í apríllok. í hans stað var ráðinn Jón Baldur Lorange
kerfisfræðingur. Þá óskaði Halldór Árnason eftir launalausu leyfi um eins
árs skeið frá áramótum. Þrír nemar við Tölvuháskóla Verslunarskóla
Islands voru fengnir til að skrifa nýtt forrit fyrir skýrsluhald í hrossarækt
(skráningu ogættfærslu). Þetta var verkefni til lokaprófs þeirra við skólann.
Einn þeirra var Jón Baldur Lorange.
Þá var keypt og sett upp netkerfi fyrir einkatölvur, og eru þær nú allar
samtengdar. Unnið er að því að koma á tölvupóstkerfi, sem tengir saman
búnaðarsamböndin og þau við tölvukerfi bændasamtakanna.
Nánar verður skýrt frá þróun tölvumála í starfsskýrslu Jóns Baldurs
Lorange.
Samhliða breytingum í mannahaldi við tölvudeild var ákveðið, að Ólafur
R. Dýrmundsson, landnýtingarráðunautur, tæki að sér að hafa umsjón með
forðagæslu. Árni G. Pétursson er honum til aðstoðar við það, en hann er
lausráðinn hjá félaginu.
Samstarfsnefndir og nefndir,
sem vinna að framgangi einstakra mála
Markaösnefnd landbúnaðarins starfar á vegum landbúnaðarráðuneytisins,
og er Níels Árni Lund formaður hennar. Nefndin vinnur nú mest að
almennri kynningu á landbúnaðinum og nýtur til þess fjármuna úr Fram-
Ieiðnisjóði.
Fyrir hina alþjóðlegu ráðstefnu IFAP, sem var haldin í Bændahöllinni
16.-18. okt., gaf nefndin út velgerðan kynningarbæklingáensku, semdreift
var á ráðstefnunni.
Nefndin beitti sér fyrir viðhorfskönnun til ýmissa þátta í landbúnaðar-
málum, sem félagsvísindastofnun Háskólans gerði. Slík könnun var einnig
27