Búnaðarrit - 01.01.1992, Page 117
Ferðaþjónusta bænda
Margrét Jóhannsdóttir
Eg mun hér leitast við að skýra þróun ferða-
þjónustu á vegum bænda sem og starfsemi
samtaka þeirra og skrifstofu. í upphafi vil ég
taka það fram, að vinnuárið hjá mér hófst í
lok apríl, en þá kom ég aftur til starfa að
loknu barnseignarleyfi.
Árið 1991 var ár mikilla breytinga og tölu-
verðrarólgu, en ef eitthvað skal kallast mikil-
vægara en annað í því sambandi, þá er það
stofnun hlutafélags um rekstur skrifstofu
ferðaþjónustubænda, Ferðaþjónustu bænda
hf.
í kjölfar mikillar söluaukningar á skrifstofunni varð æ brýnna að afla
nauðsynlegra leyfa fyrir þessa sölustarfsemi. Það varð ekki gert nema með
stofnun hlutafélags. Það hefur einnig verið vitað, að Framleiðnisjóður
landbúnaðarins, sá aðili, sem að langmestu leyti hefur styrkt reksturinn,
mun ekki gera það að eilífu.
Þetta var mikið rætt í upphafi ársins 1991, og ákveðið var að fara í
fundaferð um landið til að kynna þetta mál. Viðbrögð bænda voru almennt
jákvæð, og undirbúningsstofnfundur að stofnun hlutafélags var haldinn á
Hvanneyri 24.apríl. Þann lO.júlí 1991 var hlutafélagið síðan stofnað, en
69% bæja í Félagi ferðaþjónustubænda keyptu hlut í því.
Ánægjulegasta atburð ársins tel ég vera tilkomu námsefnis fyrir ferða-
þjónustubændur, en fyrstu nemendurnir hófu nám í bréfanámi. Bréfanám
þetta heitir Fjarnám í ferðaþjónustu og hefur verið sérstaklega unnið fyrir
ferðaþjónustubændur. Námsefnisgerðin er samvinnuverkefni Ferðaþjón-
ustu bænda, Iðntæknistofnunar Islands og Bréfaskólans. Félagsmálaráðu-
neytið hefur að mestu leyti styrkt þetta verkefni, en menntamálaráðuneyt-
ið, Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Búnaðarfélag Islands eru einnig
styrktaraðilar.
í tengslum við bréfanámið er gert ráð fyrir, að nemendur sæki tvö
námskeið, og voru þau haldin á Hvanneyri í aprílmánuði og á Akureyri í
nóvember.
115
L