Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 30
gerð á síðasta ári. Viðhorf fólks til landbúnaðarins var nú jákvæðara en þá.
Fulltrúar B.í. í nefndinni eru Sigurgeir Þorgeirsson og varamaður hans
Óskar ísfeld Sigurðsson.
Milliþinganefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan félagskerfis
landbúnaðarins, kosin eftir tillögum frá Búnaðarþingi 1990, skilaði tillög-
um til Búnaðarþings 1991 og lauk þar með störfum.
Nefnd þriggja stjórnarmanna í B.I., sem skipuð er þeim Magnúsi
Sigurðssyni, Gunnari Sæmundssyni og Hermanni Sigurjónssyni, hefur
unnið að útfærslu á þeim tillögum, sem Búnaðarþing 1991 samþykkti um
félagskerfið og breytingar á því. Hún leggur fram tillögur og ábendingar
fyrir Búnaðarþing.
Nefnd til að gera tillögur að reglugerð við búfjárrœktarlög, skipuð þeim
Ólafi R. Dýrmundssyni, Sigurgeiri Þorgeirssyni sem fulltrúum B.í. og Jóni
Viðari Jónmundssyni sem fulltrúa landbúnaðarráðherra lauk störfum.
Reglugerð við lögin hefur nú verið staðfest.
Aðild að stjórnum, föstum nefndum og innlendum samtökum
Stjórn Stofnlánadeilar landbúnaðarins. Jón Helgason í Seglbúðum, formað-
ur B.Í., er aðalmaður, og Sigurður Þórólfsson, bóndi í Innri-Fagradal,
varamaður í stjórninni, tilnefndir af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Jónas Jónsson á sæti í stjórninni
tilnefndur af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda. Magnús Sigurðsson, bóndi á Gilsbakka, er
aðalmaður og Steinþór Gestsson á Hæli varamaður, tilnefndir af stjórn
Búnaðarfélags íslands.
Stjórn Bjargráðasjóðs. Formaður Búnaðarfélags íslands á lögum sam-
kvæmt setu í stjórninni. I samræmi við það lét Hjörtur E. Þórarinson á Tjörn
af störfum í stjórninni á árinu, en Jón Helgason tók við.
Stjórn Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Jónas Jónsson er aðalmað-
ur í stjórninni og Ólafur E. Stefánsson varamaður, tilnefndir af stjórn
Búnaðarfélags íslands.
Tilraunaráð Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Ráðunautarnir Ólaf-
ur R. Dýrmundsson og Óttar Geirsson eru aðalmenn í ráðinu og varamenn
þeirra ráðunautarnir Jón Viðar Jónmundsson og Magnús Ágústsson,
tilnefndir af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Veiðimálanefnd. Jónas Jónsson á sæti í nefndinni, og er Magnús Sigurðs-
son, Gilsbakka, varamaður, tilnefndir af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Stjórn laxeldisstöðvar ríkisins í Kollafirði. Jónas Jónsson á sæti í stjórn-
inrii,
Skipulagsnefnd fólksflutninga. Jónas Jónsson á sæti í nefndinni, vara-
maður er Hermann Sigurjónsson í Raftholti, tilnefndir af stjórn Búnaðarfé-
lags íslands.
28