Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 87
að staðan verði önnur um næstu Heimsleika. Nýr maður hefur tekið við
stöðu ræktunarfulltrúa FEIF, og hann er, að ég tel, mun raunsærri, hvað
fyrrnefnd mál varðar.
Hinn 27. ágúst hélt ég erindi á námskeiði á Hvanneyri, sem haldið var
fyrir erlent hestafólk. Erindið fjallaði um kynbótastefnuna og íslenska
hrossarækt.
Önnur störf. Ég kenndi um hrossakynbætur, þ.m.t. kynbótadóma
hrossa, við Búvísindadeildina á Hvanneyri og leiðbeindi þar við aðalverk-
efni.
Að lokum vil ég þakka hestafólki, starfsmönnum búnaðarsambanda og
stofnana, sem með mér hafa unnið að málefninu, stjórn Búnaðarfélags
íslands, búnaðarmálastjóra og samstarfsfólki öllu hjá félaginu fyrir ágætt
samstarf.
Ritskrá:
Horse breeding in Iceland in 1990. Birtist í ýmsum tíinaritum eigenda íslenskra hrossa
erlendis, 9 bls.
Hrossarækt, starfsskýrsla. Búmaðarrit 104, 1991, bls. 68-79.
Hrossarœktin 1990, ársrit Búnaðarfélags íslands í hrossarækt, 6. árg. Ritstjórn, samantekt og
höfundur ýmissa skýrslna og greina.
Kynbótamarkmið og kynbótastarf í hrossarækt. Ráðunautafundur BÍ og RALA 1991, 227-
250.
Kynbótamat Búnaðarfélags fslands fyrir undaneldishross. Morgunblaðið, miðvikudagur 18.
desember 1991, 46-47.
Multistage Index Selection in Finite Populations. Biometrics 47, 205-221, (ásamt Lennart
Norell og Þorvaldi Árnasyni).
Um áramót. Eiðfaxi, 1991 (12), 16-19.
85