Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 58
Nautauppeldisstöðin í Þorleifskoti
Sigurmundur Guðbjömsson
Árið 1991 var tekinn inn 51 kálfur, og skipt-
ast þeir þannig eftir landshlutum: af Vestur-
landi 7, Norðurlandi 20, Austurlandi enginn
og Suðurlandi 24. Nautsfeður voru þessir á
árinu: Kaupi 83016, 21 sonur, Bjartur 83024,
17 synir, Hrókur 83033, 8 synir, Belgur
84036, 3 synir, Rauður 82025, 1 sonur, Ái
83023, 1 sonur. 27 naut urðu ársgömul á
árinu, og var meðalþungi þeirra 340,6 kg,
brjóstmál 162,6cm. 42 naut fóru til sæðistöku
að Nautastöðinni á Hvanneyri. 17. janúar
fóru 11 naut, 24. apríl fóru 10 naut, 22. ágúst
fóru 9 naut og 12. desember fóru 12 naut. 25 naut voru felld af ýmsum
orsökum.
Störf mín við stöðina voru með svipuöum hætti og undanfarin ár.
Fóðrun gekk vel, heilsufar var gott, og engin vanhöld urðu. Nautaupp-
eldisstöðin er sóttvarnarstöð, og fara þarf eftir settum reglum. Þ.a.l. þarf
allt hreinlæti að vera í góðu lagi, kálfakassa og stíur bæði í móttöku og
sóttkví þarf að hvítþvo og sótthreinsa. Hálfsmánaðarlega eru allir gripir
eins árs og yngri vigtaðir, svo og fóðrið í þá, með tilheyrandi skýrsluhaldi.
Við 60 daga aldur er hver gripur veginn þrjá daga í röð. Þetta er endurtekið,
þegar skepnurnar eru eins árs. Er þetta gert til að fá nákvæmari vigt.
Ég sé um hey- og fóðurblöndukaup og móttöku á því, einnig um viðhald á
tækjum og búnaði. Kálfa af Suðurlandi hef ég sótt sjálfur. Köfnunarefn-
istankur er í minni vörslu, og annast ég sæðisdreifingu til frjótækna á
Suðurlandi. Fundi kynbótanefndar hef ég setið.
Starfsmaður minn er Þórfríður Soffía Haraldsdóttir, og þakka ég henni
vel unnin störf. Einnig vil ég þakka Diðriki Jóhannssyni og Jóni Viðari
Jónmundssyni ánægjulegt samstarf.
56