Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 53
Nautgriparækt
Ólafur E. Stefánsson
Gallowayhjörðin í Hrísey. Eins og getið var í
síðustu starfsskýrslu minni, skipaði landbún-
aðarráðherra hinn 13. júlí 1990 fimm manna
nefnd til að gera tillögur um notkun sóttvarn-
arstöðvarinnar í Hrísey í framtíðinni og fram-
ræktun Galloway-hjarðarinnar í landi. Á 4.
fundi nefndarinnar, 24. nóvember 1990, var
ákveðið að sæða ekki þær kýr, sem þá voru á
stöðinni, heldur hafa þær kálflausar vegna
áformaðrar áætlunar um framleiðslu frjóvg-
aðra eggja til flutnings í land. Fyrsta tilraun
nteð fósturvísaflutninga fór fram 7.-8. apríl
1991. Höfðu sex kýr verið meðhöndlaðar með hormónum. Ein kýr gaf 14
frjóvguð egg, sent voru flutt í 12 kýr á fjórum bæjum í landi. Munu fimm
þeirra hafa fest fang. Um sumarið var smátilraun gerð nteð fósturvísaflutn-
ing. Höfðu fimm kýr verið sprautaðar og voru skolaðar 8. júlí. Var árangur
skolunarinnar talinn „mjög ófullnægjandi'b Við leit fundust aðeins tvö egg,
sitt úr hvorri kúnni, en voru þó góð, og voru flutt í tvær kýr á sama bæ í
landi. Reynsla Dana mun sú, að sumarmánuðir séu óhentugir til fósturvísa-
flutnings. Því átti að bíða nteð þriðju tilraunina til hausts og hafa hana eins
viðamikla og kostur væri. Hafði verið keypt sérstakt djúpfrystingartæki
fyrir fósturvísa í því skyni, að meginhluti fósturvísanna yrði frystur og
geymdur á stöðinni og notaður síðar, þegar markvísari skipan um ræktun í
landi hefði verið komið á. Úr þessari tilraun varð ekki. Aðeins naut, fædd á
stöðinni, mátti nota í tilraununum, þ.e. svo til sömu nautin og sæði hefur
verið notað úr í landi síðustu árin. Fyrir hverja af þessum áætluðu tilraunum
gerði ég tillögur um, við hvaða nauti hver kýr yrði sædd.
Það leiðir af því, sem nú hefur verið sagt, að allar kýr í hjörðinni eru enn
kálflausar, en kálfar voru þó að fæðast frant yfir mitt ár. Því lagði ég til á
fundi í nefndinni 9. desember, að leyft yrði að sæða eða halda undir naut
hluta af kúnum, sem minnstur skaði væri að missa út úr hreinræktuninni.
Leyfði nefndin, að tíu kýr yrðu valdar og þeim haldið hið fyrsta við nautum
stöðvarinnar.
51