Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 127
Tafla 1.
Yfirlit yfir skiptingu vinnustunda árið 1991
Árið 1991 Árið 1990
Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall
vinnustunda % vinnustunda %
Sauðfjárrækt 1773 25,5 2009 29.9
Nautgriparækt 1353 19,8 1202 17,9
Loðdýrarækt 1374 19,8 1360 20,3
Skrifstofafbókhaldo.fl.) 370 5,3 282 4,2
Forðagæsla 575 8,3 207 3,1
Hrossarækt 1205 17,4 393 5,9
Búreikningar 0 0,0 1022 15,2
Annað 298 4,3 224 3,3
Tímaralls 6948 6699
Svo sem sjá má á töflu 1 og súluriti I, hefur vinna við hrossarækt aukist
mest á árinu. Nýtt tölvukerfi - Fengur - var tekið í notkun júlí, og var þá
hafin skráning á gögnum úr nýju skýrsluhaldi hrossaræktarinnar. Greini ég
nánar frá Feng síðar. Búreikningastofan var lögð niður um áramótin 1990/
91 og þ.a.l. var engin vinna við búreikninga. Vegna niðurskurðar á sauðfé í
samræmi við nýja búvörusamninginn var skráning á forðagæsluskýrslum
fyrir 1991 hafin af fullum krafti í desember, en sú vinna hefur yfirleitt hafist
eftir áramótin. Aukning á vinnu vegna forðagæslu skýrist af því sem og, að á
árinu var hafin vinna við gerð nýs tölvukerfis fyrir forðagæsluna. Vinna í
sauðfjárrækt og nautgriparækt er orðin það stöðluð, að mestur vinnutími í
þeim greinum var bein skráning. Hins vegar fór mikill tími í undirbúning
fyrir skráningu í hrossaræktinni, þar sem um nýtt skýrsluhald var að ræða og
skráningareyðublöð ekki fyllt út á fullnægjandi hátt. Þannig voru tveir af
hundraði vinnutímans í sauðfjárræktinni við undirbúning fyrir skráningu,
sjö af hundraði í nautgriparækt, en rúmlega 21 af hundraði í hrossarækt.
Þetta undirstrikar mikilvægi þess, að skráningareyðublöð séu greinargóð
og, að skýrsluhaldarar fylli þau rétt og samviskusamlega út. Þessa miklu
forvinnu í hrossaræktinni hefði vafalaust mátt minnka verulega, ef héraðs-
ráðunautar búnaðarsambanda hefðu sinnt eftirlitsskyldu sinni með skýrslu-
haldinu betur.
Vinna við rekstur tölvukerfis félagsins hefur aukist á árinu vegna
netkerfisins. Ég hefi séð um rekstur þess, sem felst m.a. í skilgreiningu
nýrra notenda, sameiginlegri afritunartöku, uppsetningu og viðhaldi hug-
búnaðar á neti, þjónustu við notendur netsins, kynningu og kennslu á neti
og þeim hugbúnaði, sem á því er. Guðlaug Eyþórsdóttir hefur hins vegar
haft rekstur AS/400 tölvukerfisins í sínum verkahring. Mikil vinna fór hjá
mér í lausn á ýmsum smærri verkefnum fyrir starfsfólk B.I. og búnaðarsam-
banda. Búnaðarfélagið sá um tölvuvinnslu fyrir Landssamband hesta-
125