Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 188
Mál nr. 12
Tillaga til þingsályktunar um athugun á vistfrœðilegri þróun landbúnaðar á
íslandi - 155. mál 115. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing leggur áherzlu á, að samþykkt verði á Alþingi því, er nú
situr, tillaga til þingsályktunar um athugun á vistfræðilegri þróun landbún-
aðar á íslandi- 155. mál 115. löggjafarþings.
Þingið bendir sérstaklega á nauðsyn þess að hraða afgreiðslu á þessu
máli, svo að unnt verði að ljúka umræddri athugun fyrir tilskilinn tíma.
Mál nr. 13
Tillaga til þingsályktunar um friðun „Landnáms Ingólfs“ fyrir lausagöngu
búfjár - 166. mál 115. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 20 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing lýsir ánægju sinni með aukinn áhuga almennings á umhverf-
isvernd og endurheimt gróðurs. Bændasamtökin bjóða velkomna til sam-
starfs og samvinnu alla þá, sem af einlægni vilja vinna að þessum málum.
Allir, sem af sanngirni og raunsæi vilja vinna þar gagn, hljóta að taka mið
af því, hver breyting er orðin í landbúnaði, bæði með fækkun sauðfjár og,
ekki síður, breyttum landnotum, þ.e. auknum ræktunarbúskap.
Hins vegar bendir Búnaðarþing á nauðsyn þess að friða vegsvæði með
gripheldum girðingum og vitnar í því sambandi til ályktana Búnaðarþings
frá 1990, mál nr. 3, og 1991, mál nr. 19 og 30, um þá hættu, er stafar af búfé á
vegum og aðgerðir þar að lútandi.
Sú tillaga, sem hér liggur fyrir, er aftur á móti óþörf, því að nú er starfandi
nefnd, sem vinnur að þessum málum af fullum krafti. Nefnd þessa skipaði
landbúnaðarráðherra 9. sept. 1991 til þess að móta tillögur um þessi mál.
Rétt er einnig að benda á, að í Landnámi Ingólfs er verið að vinna að
skipulagi innan allflestra sveitarfélaganna, auk allflestra sveita sunnan
Skarðsheiðar. Samkvæmt skipulagsreglugerð er markmið svæðisskipulags
að móta samræmda heildarstefnu um þróun byggðar á svæðinu og stuðla að
hagkvæmri þróun, ennfremur að sýna í einstökum atriðum stefnumörkun
hlutaðeigandi sveitarstjórna um þróun byggðar og landnot innan svæðisins.
í ljósi þess, er að framan greinir, mælir Búnaðarþing ekki með samþykkt
tillögu til þingsályktunar um bann við lausagöngu búfjár í Landnámi
Ingólfs.
186