Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 179
TEKJUR:
Selt sæði: 30.400 kýr x 547 kr.......................................................... 16.629
Holdanautasæði, 4900skammtar............................................................. 4.410
Felld naut............................................................................... 2.800
Húsaleigutekjur ........................................................................... 111
Framlag v/launa.......................................................................... 1.615
Vaxtatekjur................................................................................. 25
Samtalskr............................................................................... 25.590
Mál nr. 3
Frumvarp til laga um dýravernd, 221. mál. Lagt fyrir á 115. löggjafarþingi
1991.
I
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 18 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing mælir með samþykkt frumvarps til laga um dýravernd, sem nú
liggur fyrir Alþingi - þó með eftirtöldum breytingum:
1. í 1. gr. komi dýra í stað hryggdýra. Úr 2. málsgr. 1. gr. falli niður orðin
„að auki“.
2. í II. kafla laganna má segja, að 3.-6. gr. fjalli að mestu leyti um þætti,
sem kveðið er á um í lögum um búfjárhald, sem samþykkt voru á
Alþingi 11. marz 1991, og sýnist óþarft, og jafnvel til baga, að setja
ákvæði um sömu þætti í þessi lög, þar sem það gæti torveldað
framkvæmd laganna, ef ekki eru skýr ákvæði um, hvaða ráðuneyti fari
með framkvæmdavald og reglugerðarsetningu varðandi þessi mál. í
lögum um búfjárhald er skilgreining á því, hvað telst búfé, en sú
skilgreining þarf að vera fyrir hendi.
3. 9. og 10. gr. mætti sameina. í 1. mgr. 10. gr. í frumvarpinu komi þessi
breyting ... að veita því umönnun eftir föngum og gera umráðamanni
eða löggæzlumanni viðvart án tafar, sem kveðja til dýralœkni, ef þörf
krefur.
4. 1. mgr. 11. gr. hefjist svo: Ef dýr villast eða strjúka að heiman, eða
sleppa úr lokuðum girðingum o.s.frv. Síðasta mgr. 11. gr. orðist svo:
Um búfé gilda lög um búfjárhald, lög um afréttarmálefni ogfjallskil og
lög um varnir gegn smitandi búfjársjúkdómum.
5. Við fyrri mgr. 12. gr. bætist: Forðast skal aðflytja dýr, effœrö og veður
er tvísýnt.
6. Við 13. mgr. bætist mgr. svohljóðandi: Umhverfisráðherra getur bann-
að dýr, sem eru hœttuleg, örðug að halda á viðhlítandi hátt hér á landi
eða vekja rökstuddan ótta meðal fólks.
7. 14. gr. breytist þannig: I 1. mgr. komi: Undanþegnar eru þó minni
háttar aðgerðir og lyfjameðferð í samráði við dýralœkni.
12
177