Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 31
Búfrœðslunefnd. Ólafur R. Dýrmundsson og Gunnar Þórarinsson, hér-
aðsráðunautur, eiga sæti í nefndinni, kosnir af Búnaðarþingi.
Stjórn vinnueftirlits í landbúnaði. Jónas Jónsson á sæti í stjórninni,
tilnefndur af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Stjórn Hagþjónustu landbúnaðarins. Jónas Jónsson er aðalmaður í
stjórninni, en Ketill A. Hannesson varamaður, tilnefndiraf stjórn Búnaðar-
félags Islands.
Stjórn Stóðhestastöðvar ríkisins í Gunnarsholti. Þorkell Bjarnason og
Steinþór Gestsson eru fulltrúar Búnaðarfélags íslands í stjórninni, en
formaður er Sveinn Runólfsson. Aðrir stjórnarmenn eru Kjartan Georgs-
son og Þrúðmar Sigurðsson. Búnaðarfélag íslands annast fjárhald fyrir
rekstur stöðvarinnar, en nánar má lesa um starfsemi hennar í skýrslu
Þorkels Bjarnasonar.
Stjórn Hrossakynbótabúsins á Hólum í Hjaltadal. Kristinn Hugason á
sæti í stjórninni, tilnefndur af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Fóðureftirlits-, sáðvörueftirlits-, og áburðareftirlitsnefndir starfa sam-
kvæmt lögum um framleiðslu og sölu þessara vara. Fulltrúar Búnaðarfélags
íslands í nefndunum eru í sömu röð: Óskar ísfeld Sigurðsson, Óttar
Geirsson og Árni Snæbjörnsson.
Búfjárrœktarnefndir starfa samkvæmt lögum um búfjárrækt. Þær voru
kosnar á Búnaðarþingi 1990. Formenn þeirra og fulltrúar Búnaðarfélags
Islands eru:
Nautgriparæktarnefnd, Jón Viðar Jónmundsson.
Sauðfjárræktarnefnd, Sigurgeir Þorgeirsson.
Hrossaræktarnefnd, Þorkell Bjarnason.
Loðdýraræktarnefnd, Sigurjón Jónsson Bláfeld.
Svínaræktarnefnd, Pétur Sigtryggsson.
Alifuglanefnd, Guðmundur Jónsson.
Kanínuræktarnefnd, Ingimar Sveinsson.
Samstarfsnefnd um viðurkenningu nýrra býla og félagsbúa. Jónas
Jónsson á sæti í nefndinni fyrir Búnaðarfélag íslands.
Dýraverndarnefnd íslands. Jónas Jónsson á sæti í nefndinni, tilnefndur af
stjórn Búnaðarfélags íslands.
Þátttaka í samtökum með öðrum þjóðum
Norrænu bœndasamtökin (NBC). Stéttarsamband bænda, Búnaðarfélag
Islands, Framleiðsluráð landbúnaðarins, Samband sláturleyfishafa og Sam-
tök afurðastöðva í mjólkuriðnaði mynda íslandsdeild NBC. Formaður
hennar er Haukur Halldórsson, varaformaður Jónas Jónsson og ritari
Hákon Sigurgrímsson. Haldnir eru tveir eða þrír fulltrúaráðsfundir á ári til
skiptis á Norðurlöndunum, en aðalfundur er haldinn annað hvert ár.
29