Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 113
Búnaðarhagfræði
Ketill A. Hannesson
Skrifstofustörf voru með hefðbundnu sniði.
Áætlanagerð fyrir bændur færist stöðugt
meira til búnaðarsambandanna, og hefur for-
ritið Búhagur verið mest notað. Á næsta ári
verður það væntanlega endurskoðað. Starf í
fiskeldishóp B.í. var með minna móti þetta
árið. Starf mitt á árinu var mjög tengt þróun
og kennslu á búreikningaforritinu Búbót.
Nýjungar voru kynntar á ráðunautafundi í
byrjun febrúar. Útgáfa 0.8 af Búbótvar send
út til notenda 8. apríl, og var það heldur
seinna en ætlað var. Þessi útgáfa var endur-
skrifuð í forritunarmálinu Turbo Pascal og því hraðvirkari, og notendaskil
eru vinaleg. Eldri útgáfa var skrifuð í Paradox 3.0.
Útgáfa 1.0 af Búbót var send út 16. og 17. júlí og með henni leiðbeininga-
bók, 43 síður að stærð. Þessi útgáfa er að mestu leyti lokaútgáfa, sé miðað
við upphaflega áætlun. í næstu útgáfu, 1.5, sem send verður út í byrjun
febrúar 1992, verða ýmsar nýjungar og lagfæringar. Nú er mikið lagt upp úr
vinalegum notendaskilum, sem svo eru kölluð. Hugmót hf., sem tók að sér
forritun, hefur lagt áherslu á það að skila vönduðu verki og í samræmi við
þær kröfur, sem nú eru gerðar til hugbúnaðar. Meðal annars má nota mús
við flettiglugga og aðrar aðgerðir þar að lútandi.
Það skal áréttað, að Búbót er til í tveimur útgáfuni. Annars vegar er um
að ræða bændaútgáfu fyrir einn til þrjá bæi og hins vegar búnaðarsambands-
útgáfu, sem nota má til að færa bókhald fyrir mörg hundruð bæi, ef því er að
skipta.
Ymsar hugmyndir eru í mótun um tengd kerfi, sem bændur geta haft not
af, t.d. afurða- og ættarbókhald yfir sauðfé, kýr, svín og áþekkar búgreinar,
viðskiptamannabókhald, rekstrar- og greiðsluáætlanir og fl. í undirbúningi
er aukið starf á þessu sviði í samræmi við ályktun Búnaðarþings.
111