Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 190
fast eftir samþykkt sinni frá 10. janúar s.l., þar sem gerðir eru fyrirvarar af
hálfu íslands við tillögur Arthurs Dunkels.
II.
Búnaðarþing leggur ríka áherzlu á, að samningar um EES, ef af þeim
verður, skerði á engan hátt eignar- og umráðarétt íslendinga á landi og
landgæðum, svo og öðrum auðlindum til lands og sjávar.
Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands að fylgjast vel með
þessum málum og leita eftir sem viðtækustu samstarfi við aðra aðila um
þetta mál.
Mál nr. 17 og 42
Erindi Búnaðarsambands Suðurlands um endurskoðun á lögum um lax- og
silungsveiðar og Erindi Sigurðar Þórólfssonar um endurskoðun á lögum um
lax- og silungsveiði.
Málin afgreidd með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 22
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing 1992 skorar á landbúnaðarráðherra að láta nú þegar hefja
endurskoðun laga um lax- og silungsveiðar frá 1970.
Ljóst virðist, m.a. vegna aukins ræktunarstarfs í ám og vötnum og
fjölgunar hafbeitarstöðva, að þörf þessarar endurskoðunar sé brýn.
GREINARGERÐ:
Við endurskoðun laganna ber að athuga, hvort ekki sé rétt að rýmka
veiðiheimildir þannig, að einstakar ár geti notið sín, hvað afrakstur varðar,
og er þar átt við m.a. lengingu veiðitímans.
Athuga þarf gaumgæfilega skipan mála varðandi veiðivörzlu og þá, hvort
ekki sé nauðsynlegt, að slíkt sé í höndum eins opinbers aðila, m.a. til
samræmingar á þekkingu veiðivarða og framkvæmd vörzlunnar. Þá virðist
nauðsynlegt að setja inn í lög ákvæði varðandi tökubúnað hafbeitarstöðva.
Mál nr. 18
Erindi Búnaðarsambands Vestur-Húnavatnssýslu um afurðalán vegna smá-
iðnaðar í sveitum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 23 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing telur áríðandi, að smáiðnaður í sveitum eigi kost á sérstakri
lánafyrirgreiðslu til þess að fjármagna hráefni og birgðir vegna framleiðslu á
ýmsum vörum, s.s. minjagripum, fatnaði úr ull o.fl. til sölu á aðalferða-
mannatímanum.
188