Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 154
Frá setningu Búnaðarþings 1992. Við borð sjást sitja búnaðarþingsfulltrúarnir Sveinn Jónsson
og Erlendur Halldórsson. í fremstu röð sitja f.v.: Stefanía María Pétursdóttir, fulltrúi
Kvenfélagasambands íslands, Guðrún Porkelsdóttir, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands,
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri, Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri, Sigurveig
Erlingsdóttir og Sigurgeir Porgeirsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra. - Ljósm.:
J.J.D., Frey.
an. Þannig væri hægt að halda áfram að telja upp tækifæri og verkefni, sem
við getum og þurfum að vinna að.
Fulltrúar á Búnaðarþingi munu nú eins og jafnan áður taka til umfjöllun-
ar þau mál, sem brýnust eru, og benda á þær leiðir, sem vænlegast er að
fara. Það verður síðan verkefni stjórnar og starfsmanna Búnaðarfélags
íslands að vinna að framkvæmd stefnunnar eins og kostur er. Það er mikið í
húfi fyrir landbúnaðinn og þjóðfélagið allt, að þar takist vel til. Það er
hlutverk Búnaðarfélags íslands að veita góða þjónustu öllum þeim, er geta
notfært sér þá þekkingu og ráðgjöf, sem þar er fyrir hendi. Og eftir því sem
Búnaðarfélag íslands nær samstarfi við fleiri aðila, er vinna að sameiginleg-
um verkefnum, þá verður styrkur þess meiri til að sinna hlutverki sínu, en
mestur styrkur stjórnenda og starfsmanna Búnaðarfélags íslands eru að
sjálfsögðu félagsmenn þess, íslenzkir bændur, sem gera réttmætar kröfur til
félagsins um árangursríka ráðgjöf og farsæla leiðsögn. Hagsýni og góð
samvinna eru öflug tæki, sem við getum notað til að búa okkur undir þær
breytingar, sem framundan kunna að vera, og finna úrræði til að standa þær
af sér.
152