Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 37
Grænlenskir sauðfjárræktarnemar
Búnaðarfélag íslands hefur nú um áratugi útvegað unguni grænlenskum
bændaefnum námsdvöl á sauðfjárbúum. Þessi íslandsdvöl hefur lengi verið
fastur þáttur í því búfræðinámi, seni boðið er upp á við skóla- og
tilraunastofnun þeirra í Upernaviarsukk. Þar sem búskapur Grænlendinga
er nær eingöngu bundinn við sauðfjárrækt, snýst námið um hana öðru
fremur.
Haustið 1990 brá svo við, að aðsókn að skólanum hafði fallið niður,
þannig að engir nýir nemar komu.
A sl. hausti komu hins vegar þrír nýnemar, og dveljast þeir á Sauðanesi á
Langanesi, á Gunnarsstöðum í Þistilfirði og á Leirhöfn á Sléttu.
Eiríkur Helgason annast ásamt undirrituðum þessa fyrirgreiðslu.
Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins
Búnaðarfélag íslands á sem fyrr aðild að Upplýsingaþjónustu landbúnaðar-
ins og greiðir þar um 7 1/2 af hundraði af kostnaði við starf þjónustunnar.
Forstöðumaður er Helga Guðrún Jónasdóttir, fjölmiðlafræðingur, og hefur
starfsemin eflst undir hennar forystu.
Forfallaþjónustan
Búnaðarfélag íslands hefur sem fyrr umsjón með forfalla- og afleysinga-
þjónustu í sveitum. Er breyting var gerð á lögum uni Búnaðarmálasjóð á
vorþingi 1990, var fjármögnun forfallaþjónustunnar færð í það horf, að hún
skyldi kostuð með 0,4% gjaldi á framleiðsluvörur landbúnaðarins. Sam-
hliða voru þau ákvæði sett inn í sömu lög að kjósa skyldi þriggja manna
stjórn fyrir þjónustuna. Skyldu Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband
bænda kjósa sinn manninn hvort ogsá þriðji veljast af búnaðarsamböndun-
um. Stjórn þessi er nú þannig skipuð: Birna Hauksdóttir í Stóru-Hildisey,
formaður, tilnefnd af Stéttarsambandi bænda, Árni Bjarnason á Uppsöl-
um, varaformaður, tilnefndur af búnaðarsamböndunum, og Gunnar Hólm-
steinsson, skrifstofustjóri, tilnefndur af Búnaðarfélagi íslands.
Þorbjörg Oddgeirsdóttir gjaldkeri annast mál forfallaþjónustunnar í
samráði við Gunnar Hólmsteinsson.
Stóðhestastöð
Búnaðarfélag íslands sér um fjárhagslegan rekstur Stóðhestastöðvarinnar í
Gunnarsholti, en Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, sem er formaður
stjórnar stöðvarinnar, hefur haft alla umsjón með byggingaframkvæmdum.
Eíríkur Guðmundsson var stöðvarstjóri, en með honum annaðist Rúna
Einarsdóttir tamningar og hirðingu. Hún lét af því starfi á árinu, en ráðinn
var Þórður Þorgeirsson, tamningamaður frá Hellu.
Unnið hefur verið að smíði og niðursetningu innréttinga í hið nýja
35