Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 185
Fjarverandi voru þessir sex fulltrúar:
Bjarni Guðráðsson, Jón Gíslason,
Guðbrandur Brynjúlfsson, Stefán Halldórsson,
Hermann Sigurjónsson, Sveinn Jónsson.
Mál nr. 8
Erindi Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu um gjaldskrármál dýra-
lœkna.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 18 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing beinir þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra, að nýlega
endurskoðuð gjaldskrá fyrir dýralækna verði ekki staðfest, en hafin verði á
ný vinna við gerð gjaldskrár, þar sem haft verði að leiðarljósi að ná fram
lækkun á gjaldskránni og hún verði höfð eins einföld og skýr og kostur er.
í þessu sambandi leggur Búnaðarþing áherzlu á, að sjónarmið beggja
hagsmunaaðila fái að koma fram.
Ennfremur er því beint til landbúnaðarráðherra, að hann beiti sér fyrir
endurskoðun á álagningu dýralyfja og ákveðnar reglur verði settar um
heimildir dýralækna til gjaldtöku fyrir akstur.
Búnaðarþing telur eðlilegast sem fyrsta skref í þessum málum, að komið
verði á beinum, formlegum viðræðum milli Dýralæknafélags íslands og
Stéttarsambands bænda um þetta stóra hagsmunamál bændastéttarinnar.
GREINARGERÐ:
Gjaldskrá fyrir dýralækna byggist á lögum nr. 77/1981 um dýralækna. í 5.
gr. laganna segir, að landbúnaðarráðherra gefi út slíka gjaldskrá að
fengnum tillögum stéttarfélags dýralækna. Jafnframt segir, að héraðsdýra-
læknum sé óheimilt að taka hærri greiðslur fyrir störf sín.
Þar sem lögin gera ekki ráð fyrir tillögum nema annars hagsmunaaðilans
varðandi setningu gjaldskrárinnar, hljóta bændur að treysta því, að land-
búnaðarráðherra gæti hagsmuna þeirra í þessu máli.
Vegna samdráttar í framleiðslu og sölu hefðbundinna búvara og harðn-
andi samkeppni á búvörumarkaðnum, sem nú virðist í augsýn, er mikil-
vægt, að leitað sé allra leiða til lækkunar á framleiðslukostnaði landbúnað-
arvara.
Því er ekki óeðlilegt, að áherzla sé lögð á að halda kostnaði við
dýralæknaþjónustuna niðri eins og frekast er unnt.
Vaxandi óánægju hefur gætt meðal bænda með gjaldtöku dýralækna fyrir
þá þjónustu'fsem þeir veita, og því er áríðandi, að tekið sé á þessuin málum
sem fyrst af festu.
183
L