Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 126
Tölvudeild og tölvumál
Jón Baldur Lorange
í skýrslu minni mun ég reyna aö geta þeirra
fjölbreyttu verkefna, sem unniö hefur verið
að í tölvudeild B.í. frá því ég hóf störf sem
umsjónarmaður tölvumála Búnaðarfélags
íslands í maímánuði 1991.
Rekstur tölvudeildar.
Verkefni. Flest verkefni tölvudeildar voru
árstíðarbundin verk, sem urðu að vinnast
hratt á mjög stuttum tíma. Um mitt ár leit út
fyrir, að vinna í tölvudeild myndi fara ört
minnkandi, en raunin varð, að hún jókst,
bæði vegna nýrra verkefna sem og vegna aukinnar þátttöku bænda í
skýrsluhaldi. Vinnan í tölvudeild fólst í vinnu við skýrsluhald, rekstur
tölvukerfis, gerð nýrra og viðhald eldri tölvukerfa og síðast en ekki síst í
þjónustu og ráðgjöf við starfsmenn B.Í., búnaðarsambanda, bænda o.fl.
í skýrslu minni mun ég greina nánar frá þessari starfsemi starfsmanna
tölvudeildarinnar, eins og kostur er.
Vegna þeirrar fjölbreyttu vinnu, sem starfsfólk tölvudeildar vinnur við,
heldur hver starfsmaður vinnuskýrslu, þar sem fram kemur, við hvaða
verkefni hann hefur unnið og hve lengi. Tilgangur með færslu vinnuskýrslna
er m.a. að sjá skiptingu vinnutíma eftir búgreinum og nánar, við hvaða
verkefni var unnið í hverri grein. Einnig getur hver starfsmaður séð
skiptingu vinnutíma síns yfir árið. Eg breytti vinnuskýrslum í byrjun
sumars, til þess að þær gefi ítarlegri upplýsingar um skiptingu vinnustunda í
dagvinnu og yfirvinnu sem og, að sundurgreining verkefna yrði greinar-
betri. Vinnuskýrslurnar gefa nú mjög góða yfirsýn yfir starfsemina, sem
auðveldar ákvarðanatöku og tryggir góða verkaskiptingu. Greinargerðin,
sem hér fylgir á eftir, byggist á upplýsingum úr vinnuskýrslum.
124