Hugur - 01.01.2006, Page 160

Hugur - 01.01.2006, Page 160
158 Jacques Derrida tekið atriði, sértœkan eðlisformlegan þátt hlutar (rúmleika hans, til dæmis) sem er efnislega ákvarðaður sem hlutveruleg heild [corps\, burtséð frá öðr- um eðlisformlegum þáttum heilda almennt. Af þessum sökum er rúmfræð- in „efnisleg" og „sértæk“ vísindagrein.12 Þar af leiðir að „rúmfræði upplif- ana“ eða „stærðfræði fyrirbæranna“ er óhugsandi: hugmyndin um slík vísindi er „tilraun sem missir marks".13 Hvað varðar hugðarefni okkar hér hefur þetta fyrst og fremst þá þýðingu að eðlisform vitundarinnar, þ.e. eðl- isform „fyrirbæranna" almennt getur ekki verið hluti af stærðfræðilegri formgerð eða „mergð“ \multiplicité\. En hvað er það sem einkennir slíka mergð að mati Husserls, á þessu tímaskeiði hugsunar hans? I einu orði sagt, möguleikinn á lokun,14 Við getum ekki farið í saumana á þeim sérstöku stærðfræðilegu vandamálum sem þessi hugmynd Husserls um stærðfræði- legan „af-endanleika“ \définitude\ hlýtur ætíð að vekja upp, einkum þegar vísað er til tiltekinna seinni tíma kennisetninga í frumsendufræði og upp- götvana Gödels. Það sem Husserl vill draga fram með því að bera saman nákvæm og formfræðileg vísindi - sem er jafnframt það sem skiptir okkur máli hér - er sú staðreynd að fyrirbærafræði formgerða verður ekki lokað, af eðlislægum, innbyggðum og óumflýjanlegum ástæðum. Hér kemur til sú óendanlega opnun upplifunarinnar sem birtist á ýmsum stigum greiningar Husserls í líki hugsjónar að hætti Kants - innrás óendanleikans inn í vit- undina sem gefur kost á því að mynda í henni heild úr flæði tímans á sama hátt og hún myndar heild viðfangs og heims, með því að horfa fram í tím- ann, þrátt fyrir að því verki verði aldrei lokið. Undarleg nærvera þessarar hugsjónar gerir einnig kleift að farið sé út á jaðarinn og að til komi ná- kvæmni yfirleitt. 2. I Hugmyndum I er forskilvitlegri ætlandi lýst sem upprunalegri form- gerð, frum-formgerð (Ur-Struktur) sem hafi fjögur skaut er myndi tvenns konar tengsl: annars vegar eru formgerð eða tengsl sem kennd eru við noesis- noema (merkingargjöf-merkingarkjarna) og hins vegar formgerð eða tengsl sem kennd eru við morfé-hylé (form-efni). Að minnsta kosti tvennt bendir til þess að þessi samsetta formgerð eigi við um ætlandina, þ.e. um uppruna merkingar, um það að opna sig fyrir birtu þess sem fyrir ber, og að sú aðgerð 12 Sbr. Husserl, Ideen I, s. 23-25 (§9) og s. 51-53 (§25). 13 Husserl, Ideen I, s. 149 (§71). 14 „Með hjálp frumsendna, þ.e. frumlægra eðlislögmála, er [rúmfræðin] nú í stakk búin til að leiða fram, með hreinni afleiðslu, öll þau form sem „eru til“ í rúmi, þ.e. öll þau rúmfræðilegu form sem möguleg eru á sviði hugsjóna [ideal möglichen Raumgeslalten] og öll eðlissambönd sem þeim tilheyra, í líki hugtaka sem fela í sér nákvæma ákvörðun [...]. Þannig er tegundar- eðli sviðs rúmfræðinnar háttað, og hinu hreina eðli rúmsins, að í krafti aðferðar sinnar getur rúmfræðin verið fullviss um að ráða í raun og veru, og á nákvæman hátt, yfir öllum möguleik- um. Með öðrum orðum: mergð rúmfræðilegra forma almennt býr yfir þeim merkilega, rök- lega grunneiginleika sem við munum nefna „af-endanlega" mergð [„defmite" Mannigfaltigkeit] eða „stœrðjræðilega mergð ( eindregnum skilningiHann einkennist af því að endanlegur jföldi [...] hugtaka og setninga ákvarðar fullkomlega og ótvírætt, og af hreinni greiningarlegri nauðsyn, safn allra mögulegraforma innan sviðsins, þannig að samkvœmt meginreg/unni er ekkert opið inn- an þess [so dafi also in ihm prinzipiell nichts mehr offen bleibt]“ (Husserl, Ideen I, s. 151-152, §72).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.