Hugur - 01.01.2007, Side 170

Hugur - 01.01.2007, Side 170
168 Davíð Kristinsson marks um trúna á úrvals-mannkyn og æðri þjóðfélagshóp. Lýðræðið er til marks um vantrú á stórmennum og samfélagi úrvalsins: „Allir eru eins.“ „I raun erum við öllsömul sérplæginn búpeningur og skríll.“46 A öðrum stað tekur Nietzsche afstöðu með þeim sem hafa „aðra trú, við sem lít- um ekki aðeins á lýðræðishreyfinguna sem hnignunareinkenni á skipan stjórn- mála, heldur að hún verði einnig til þess að manninum sjálfum hnigni, hann smækki og verði meðalmennsku og siðferðilegri gengisfellingu að bráð“.47 Ein birtingarmynd þessarar lýðræðislegu hnignunar var að mati Nietzsches krafa kvenna um jafnrétti og kosningarétt.48 Víða í skrifum Emersons má finna gagnrýnan tón í garð þáverandi lýðræðis. Honum fannst til dæmis flokkalýðræðið sjaldnast ýta undir það að hæfustu stjórnmálamennirnir kæmust til valda og gagnrýndi þá sem tóku iðulega ákvarð- anir sem tryggðu þeim flest atkvæði í stað þess að fylgja eigin sannfæringu. Auk þess átti Harvard-stúdentinn Emerson erfitt með ófágaða framkomu margra talsmanna demókrataflokksins, flokks hinna fátæku. En þrátt fyrir að hann gripi oft til skammaryrða hafði hann að endingu meiri samkennd með hugsjónum demólcrata en hinna fágaðri fulltrúa repúblikanaflokksins. Þótt þannig megi víðs- vegar hjá Emerson sjá gagnrýni á ríkjandi lýðræði var hann ólíkt Nietzsche fylgj- andi lýðræðishugsjóninni og jafnréttishugsjóninni sem henni fylgir.49 Olíkt Nietzsche var Emerson þeirrar skoðunar að ef konur sæktust eftir kosningarétti ætti að ganga að kröfum þeirra. Þótt Emerson og Thoreau hafi álitið þáverandi lýðræði (og menn þess tíma) vera smælki sjálfs sín,50 óralangt frá fyrirheiti sjálf- stæðisyfirlýsingarinnar („Þið verðið að gerast [...] ykkar eigin sjálfstæðisyfirlýs- ingar“51), eru þeir fjarri þeirri afstöðu Nietzsches að lýðræði sé hnignunarfyrirbæri sem valdi því að hinn sanni einstaklingur víki óhjákvæmilega fyrir hjarðverunni. Auk þess litu þeir elcki á lýðræði sem hnignunareinkenni á skipan stjórnmála. Réttnefnt lýðræði var í huga þeirra beggja til marks um framfarir fremur en hnignun, enda samræmdist það einstaklingshyggju þeirra. Síðla árs 1834 hripar Emerson hjá sér: „Undirrót og frjókorn lýðræðisins er kennisetningin: Leggðu sjálfur mat á hlutina. Berðu virðingu fyrir sjálfum þér. Það eru óhjákvæmileg áhrif þeirrar kennisetningar, þar sem hún hefur einhver áhrif yfirhöfuð (sem er óal- gengt), að hún einangri flokksmanninn og geri sérhvern mann að ríki.“52 Enda þótt lærlingur hans, Thoreau, væri einnig gagnrýninn í garð ríkjandi lýðræðis leit 46 Nictzsche, Werke in drei Bánden, 3. bindi, s. 438-439. Hér eins og víðar notar Nietzsche dýralíkingu í niðrandi skilningi um hugmyndir lýðræðissinna, en ekki til þess að minna á að maðurinn sem sh'kur sé dýr. 47 Nietzsche, Handan góðs og ills, §203. 48 Sjá sama rit, §239. 49 Svipaða túlkun á afstöðu Emersons til lýðræðis finnum við víða í skrifum Stanleys Cavell; cinnig hjá Martin Mohrdiek, Demokratie bei Emerson, Bcrlín: Junker und Diinnhaupt, 1943, s. 29. Þótt rit Mohrdieks sé áhugavert bcr það þó á köflum merki þess að vera skrifað í Þýskalandi þjóðernissósíalismans. Þrátt fyrir titilinn finnum við lítið um afstöðu Emersons til lýðræðis í grcin Johns Dewey, „Emerson. Philosopher of Democracy“, The Middle Works III, London/Amsterdam, 1977, s. 184-192. 50 „Man is the dwarf of himself." Emerson, „Nature", Selected Writings of Ralph Waldo Emerson (hér eftir SWE), ritstj. William H. Gilman, New York, 2003, s. 181-224, hér s. 221. 51 Emerson, „The Fugitive Slave Law“ (7. mars 1854), Emersons Antislavery Writings, ritstj. Len Gougeon og Joel Myerson, London: Yale University Press, 1995, s. 83. 52 Journals of Ralph Waldo Emerson 1820-1872,3. bindi, s. 369-370 (23. nóv. 1834).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.