Hugur - 01.01.2007, Side 223
Frá Félagi áhugamanna um heimspeki
Undanfarin ár hafa verið stjórn Félags áhugamanna um heimspeki og ritstjóra Hugar
nokkur þolraun. Margir samverkandi þættir hafa komið þar við sögu, og má öðru fremur
kenna þá við vaxtarverki vegna metnaðarfyllra tímarits. Nú hafa komið út íjögur tölublöð
af nýjum og stærri Hug og erum við stolt af honum. En ýmsir erfiðleikar hafa fylgt þessum
vexti, þar á meðal meiri kostnaður við prentun og dreifingu. Þar að auki höfum við mátt
glíma við fortíðarvanda sem teygir sig nokkur ár aftur í tímann þó að skuldadagarnir hafi
frestast þar til nú.
En skemmst er frá því að segja að stjórnin gafst ekki upp, heldur spýtti í lófana og gekk
í verkin. Fjöldi virkra áskrifenda hefúr nær tvöfaldast frá 2004, en þeir eru nú á þriðja
hundraðið. Stjórnin hefur leitað ýmissa leiða til að fjölga áskrifendum, til dæmis með
tilboðum til þeirra sem nú leggja stund á heimspeki við Háskóla Islands og þeirra sem
útskrifast hafa með BA-próf í heimspeki frá sama skóla. Til að lækka dreifingarkostnað
báru stjórnarmenn sjálfir út dágóðan hluta af upplagi síðasta Hugar.
Ennfremur höfum við leitað til atvinnulífsins um styrki og hefur það borið ágætan
árangur. Viljum við sérstaklega þakka H.F. verðbréfúm hf, Glitni og Kaupþingi banka
veittan stuðning. Hugur hefur alltaf komið út með tilstuðlan Heimspekistofnunar og
kunnum við stjórnarmönnum hennar bestu þakkir fyrir, nú sem endranær.
Ekki hefur þó allur tími stjórnarmanna farið í peningaleit og bjástur við að tryggja
afkomu Hugar. Þannig hefúr félagið staðið fyrir ýmsum heimspekiviðburðum á síðustu
árum. Þar má meðal annars nefna Þorsteinsvöku í minningu Þorsteins Gylfasonar, sem
haldin var í nóvember 2005, fyrirlestur Stefáns Snævarr í febrúar 2007 og núna síðast fyrir-
lestur Chung-ying Cheng um kínverska heimspeki í maí 2007. Þar að auki má nefna að
Félag áhugamanna um heimspeki hefúr tekið félagsskapinn Huggun heimspekinnar undir
sinn verndarvæng, en undir þeim merkjum hafa verið haldnir tugir fyrirlestra- og umræðu-
fúnda á síðustu árum.
Minna má á vefsvæði félagsins, www.heimspeki.hi.is/?fah, en þar er meðal annars að
finna efnisyfirht Hugar frá upphafi - þannig að hæg eru heimantökin að leita í þeim mikla
sarpi sem safnast hefúr í undir merkjum Hugar. Einnig eru þar upplýsingar um hvernig
megi gerast áskrifandi að Hug (og ganga þar með í Félag áhugamanna um heimspeki).
Frá því pistill frá stjórn félagsins var síðast birtur í Hug (í 15. árgangi, 2003) hafa farið
fram þrír aðalfúndir. Rétt er að greina hér frá stjórnarkjöri á hverjum aðalfúndi fyrir sig. Á
aðalfundi 9. nóvember 2004 voru eftirtalin kjörin í stjórn: Pétur Gauti Valgeirsson for-
maður, Ármann Halldórsson gjaldkeri, Kristín Hildur Sætran ritari, Olafúr Páll Jónsson
meðstjórnandi og Róbert Jack varamaður. Á aðalfúndi 24. október 2005 voru kjörin Pétur
Gauti Valgeirsson formaður, Armann Halldórsson gjaldkeri, Kristín Hildur Sætran ritari,
Ólafúr Páll Jónsson meðstjórnandi og Steinar Örn Atlason varamaður. Og á aðalfúndi r2.
desember 2006 voru kjörin Pétur Gauti Valgeirsson formaður, Björn Þorsteinsson gjald-
keri, Kristín Hildur Sætran ritari, Ólafúr Páll Jónsson meðstjórnandi og Hrannar Már
Sigurðsson varamaður.
Að lokum má geta þess að Hugur verður 20 ára á næsta ári og erum við í stjórninni
þegar byrjuð að leggja drög að afmælisdagskrá og -fagnaði.
F.h. stjórnar FÁH
Pétui Gauti Valgeirsson,formaður