Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 97

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 97
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Orðabanki á Netinu Málrækiarwng Íslenskrar málnefndar var haldið laugardaginn 15. nóvember 1997. Þar fór meðal annars fram kynning á Orðabanka Islcnskrar málstöðvar og síðan opnaði menntamálaráðherra bankann inn á Alnetið. Hugmyndin að íðorðabanka niun fyrst hafa komið fram á árinu 1979. í reglugerð um íslenska málnefnd og íslenska málstöð frá 1987 er kveðið á um undirbúning slíks banka, en skriður komst ekki á framkvæmdir fyrr en á árinu 1995. Frarn til þess tíma höfðu íðorð ýmissa orðanefnda þó verið tölvuskráð á íslenskri málstöð, meðal annarra Iðorðasafn lækna, þannig að gera mætti úr þeim einn íðorðabanka. Nú er hugmyndin orðin að veruleika og netverjar geta fyrst um sinn fengið ókeypis aðgang. Fjórtán orðasöfn voru komin í bankann við opnun hans og kennir þar ýmissa grasa, allt frá bíl- og flugorðasöfnum til orðaskráa í efnafræði og stjörnufræði. Slóðin er þessi: http://www. ismal.hi. is/ob/index.html. íðorðasafn lækna á Netinu Af ýmsum ástæðum náðist ekki að opna aðgang að íðorðasafni lækna á fyrsta degi bankans, en formleg- ur samningur um birtingu hefur verið gerður og vonir standa til að safnið verði komið á Netið þegar þessi pistill birtist. Rétt er að vekja athygli á því að heildar- endurskoðun safnsins hefur ekki farið fram, og að það íðorðasafn sem birtist í orðabankanum er fyrst og fremst það sem kom út í litlu heftunum á árunum 1985-1989. Orðanefnd læknafélaganna skipuleggur nú endurskoðun íðorðasafnsins og vonast til að eigin- leg orðabókarvinna hefjist í upphafi árs 1998. Að henni lokinni er gert ráð fyrir að safnið verði einnig gefið út á formi sem henti einkatölvum, hvort heldur er á sjúkrahúsum, skrifstofum eða heimilum. Einnig má vekja athygli á því að heftin eru enn til sölu á skrifstofu læknafélaganna og fást á gamla góða verðinu kr. 5000. Það er að sjálf- sögðu miklu fljótlegra að grípa hefti úr bókahill- unni til uppflettingar, en að rekja sig eftir slóð ver- aldarvefsins fyrir eitt einasta orð. Uppflettingar í Orðabankanum samhliða langri ritvinnslu í tölvu verða þó vonandi nægilega hraðvirkar. Referral center Ásbjörn Jónsson, yfirlæknir á röntgendeild Sjúkra- húss Reykjavíkur, sendi nýlega í tölvupósti beiðni um aðstoð við þýðingu á referral center. Tiltækar ensk- amerískar læknisfræðiorðabækur birta ekki þetta hugtak sem sjálfstæða flettu, en hin mikla líf- og læknisfræðiorðabók Wileys lýsir referral þannig: Það að senda sjúkling til annars aðila í heilbrígðiskerf- inu, venjulega til sérhœfðrar þjónustu, eða til ann- arrar stofnunar eða þjónustudeildar. Center er þar meðal annars þannig lýst: Stöð sem þjónar samfélagi eða sérstökum hópi og veitir tiltekna sérhœfða þjónustu. íðorðasafn lækna birtir þýðingar á center: miðja, miðbik, stöð, miðstöð, en referral finnst þar ekki. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs þýðir referral hins vegar með nafnorðinu tilvísun. Læknar hafa lengi notað íslenska nafnorðið til- vísun, annars vegar um þann gerning að vísa sjúk- lingi til annars aðila í heilbrigðiskerfinu, einstak- lings eða stofnunar, og hins vegar um þá formlegu beiðni sem fylgir sjúklingi til staðfestingar tilvísun- inni og til nánari lýsingar á ástæðum hennar. Ásbjörn leggur áherslu á þann skilning að „slík deild sé endastöð í þjónustunni". Orðin miðja, niiðbik og stöð gefa slíkt tæpast nógu vel til kynna. Fyrir þá sem hafa kynnst handvirkum símstöðvum eða eldri upphitunarkerfum íbúðarhúsa, er mið- stöð hins vegar sá staður sem allir þræðir liggja til eða allar leiðslur liggja frá. Að þessu sögðu liggur beint við að gera þá tillögu að referral center verði tilvísunarmiðstöð. Heitið gerir þó ekki endilega ráð fyrir að um „endastöð“ sé að ræða, áherslan er á lykilstöðu eða meginaðsetur tiltekinnar þjón- ustu. Vinulág í 93. pistli var stutt umfjöllun um heiti á philtrum, sem er dældin í miðri efri vör beint undir miðsnesi. Magnús Snædal vakti athygli mína á því að til er heitið vinulág. Hann telur það komið frá Bjarna Pálssyni, lækni, sem skipaður var fyrsti landlæknir íslendinga árið 1760. Heitið finnst í íslenskri orðabók Máls og menningar. Vinulág er skáldlegt heiti og fallegt og í samræmi við þá upprunaskýringu á latneska heitinu philtrum, að það sé komið af grísku sögninni philcin, að elska. Lbl 1997; 83:852 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87 97
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.