Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 110

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 110
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 síðarnefndu gefa til kynna stööu innan samfélags, kerfis eða stofnunar og tengjast þá oft kjarabar- áttu og launum. Þörf er einnig á nýjum heitum þegar nýjar starfs- greinar verða til og þannig er ástatt hjá Viktori. Hann starfar við daglegan rekstur hjarta- og lungnavélar, en um þá iðju er á ensku notað starfs- heitið perfusionist. Iðorðasafn lækna birtir heitið gegnflæði, sem þýðingu á pcrfusion, og lýsir þannig: Pað að láta blóð eða annan vökva renna í gegnum œðabeð. Þar með má segja að komin sé þýðing á fyrri hlutann, en hvernig á þá að fara með seinni hlutann? Orðabók Websters tilgreinir við- skeytið -ist og að það sé notað um þann sem iðkar eða fœst við eitthvað, eða fylgir kennisetningu eða grundvallarreglu. Meðan ekki koma fram aðrar tillögur, má not- ast við blóðflæði- eða flæði- sem fyrri hluta og vísa síðan í grunnmentun hvers starfsmanns með síðari hluta heitisins. Þannig kæmu fram heitin: (blóð-) flæði-meinatæknir, -tæknifræðingur, -verkfræð- ingur, -hjúkrunarfræðingur og -læknir. Býður ein- hver betur? Lbl 1999; 85:264 Nuchal fold 110 Reynir Tómas Geirsson, prófessor, hafði samband og bað um hugmyndir að íslensku heiti á því sem á ensku nefnist nuehal fold thickness og er í daglegu tali starfs- manna í meðgöngueftirliti gjarnan nefnt nuehal fold. A sónardeild kvennadeildar Landspítalans er kominn af stað undirbúningur að því að taka upp sérstaka aðferð við fósturskoðun á meðgöngu- tíma. Aðferðin byggist á því að mæla þykktina á undirhúð á hnakkasvæði fósturs og nota mæling- una til að meta hættuna á því að fóstrið beri litn- ingagalla, nánar tiltekið þrístæðu 21, sem veldur Downs heilkenni. Rannsóknir hafa leitt í ljós að mikil þykknun á þessu svæði gefi vísbendingu um að hætta á Downs heilkenni sé aukin. Þörf er þá á litningarannsókn á fóstur- eða legvatnsfrumum, til að fá fulla vissu um það hvort litningagalli sé til staðar eða ekki. Læknisfræðiorðabók Stedmans upplýsir að nucha sé afturhluti hálsins. Þar er uppruni heitisins rakinn til frönsku, nuquc, sem Frönsk-íslensk orðabók Gerard Boots segir að þýði hnakki. Hin mikla alfræðilega orðabók Websters vill hins vegar rekja upprunann til arabísku, en þar mun vera til orðið nukha, sem orðabókin upplýsir að rnerki mœna. Líffæraheitin tilgreina að aftara hálssvæðið sé nefnt regio ecrvicalis posterior eða regio nuch- alis á latínu. íðorðasafn lækna birtir orðið svíri sem þýðingu á nucha. Um svíra segir meðal annars í íslenskri orðabók Máls og menningar: hnakki, hálsinn að aftanverðu, digur háls. Undirritaður vandist því sem unglingur, að svíri væri eingöngu notað um háls á manni honum til óvirðingar, en gjarnan um háls á nautgripum. Heitið svíri er því óheppilegt í þessu samhengi. að ræða. Umræddir vefir eru hins vegar þykknaðir. Orðið þykkt má finna í ritmálssafni Orðabókar Há- skólans og eru helstu merkingarnar: seigja, gildleiki, þungun og það hvað eitthvað er þykkt. Islenska orðabókin útskýrir kvenkynsnafnorðið þykkt þannig: 1 það hve e-ð er þykkt. 2 gildleiki; bólga af völdum innvortis sjúkdóms; gildleiki óléttrar konu. I Islenskri samheitaorðabók eru birt samheitin þykkt, digurð, gildleiki, sverleiki, þykkleiki, þykkni. Heitið háls- þykkt gæti auðveldlega misskilist og þykkni á ekki við nema um aukna þykkt sé að ræða. Undirritaður leggur því til að notað verði íslenska heitið hnakka- þykkt. Brisbólga Páll Helgi Möller, læknir á Landspítala, sendi tölvu- póst og sagði frá því að hann vantaði íslenska þýðingu á heitið eniphysematous pancreatitis. Páll lýsti fyrir- bærinu þannig: ástand þar sem loft sést í briskirtli samfara briskirtilsbólgu. Ástæður geta verið sýking af völdum Gram neikvœðra sýkla eða fistill milli briskirtils og þarma. Iðorðasafn lækna gefur íslensku heitin vefja- þemba fyrir eniphysema og brisbólga fyrir pan- creatitis. Undirritaður prófaði að nota þau í sam- sett heiti, en fann ekki lausn með þeirri aðferð. Hvorug samsetningin, „vefjaþembandi brisbólga“ eða „vefjaþembubrisbólga“, er aðlaðandi og undir- rituðum finnst að heitin „brisþembubólga“ og „þembubrisbólg“" geti gefið villandi hugmyndir. Lokaniðurstaðan varð því sú að stinga upp á að emphysematous pancreatitis nefnist brisbólga með loftþembu. Það heiti er almennt og tekur ekki neina afstöðu til þess hvert er orsakasambandið milli bólgunnar og þembunnar. Hnakkaþykkt Þrátt fyrir að í enska heitinu á umræddri þykknun sé notað orðið fold, mun ekki vera um eiginlega fellingu Inngrip eða íhlutun Hlédís Guðmundsdóttir, læknir, sendi tölvupóst í framhaldi af 108. pistli, þar sem rætt var um inter- 110 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.