Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 113

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 113
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Þá bylur óþyrmilega í þakinu og í hugann kemur hending úr ljóði eftir einmana íslenskt skáld á erlendri grundu: „Af hússins upsum drýpur erlent regn". Hér er þó ekki ástæða til að vera einmana. Ljúfir tónar hljóma úr dönsku sjónvarpstæki og fyrir augun ber blaktandi kertaljós sem tendrað hefur verið hjá stórum hópi trúariðkenda í Taizé- klaustrinu í Frakklandi. Lofgjörðarsöngur þessa dags er fjölþjóðlegur, ýmist sunginn á latínu, frönsku eða þýsku, og beðið er á ensku, spænsku, norsku, sænsku og finnsku fyrir þeim meðbræðr- um sem búa við hörmungar, allt frá Kólumbíu í vestri til Kambódíu í austri, allt frá írlandi í norðri að Súdan í suðri. Alþjóðlegt umhverfi. Áfram má lýsa hinu alþjóðlega umhverfi. Undir- ritaður situr í þægilegum þýskum íþróttabúningi, við öfluga ameríska tölvu og reynir að koma sænskri út- gáfu ritvinnslukerfisins til að birta bókstafi síns ást- kæra, ylhýra máls. Ætlunin er svo að senda pistilinn óbrenglaðan um sænska símkerfið, inn á hið alþjóð- lega Alnet, síðan um íslenska símkerfið og loks beint inn í tölvu Læknablaðsins. Og allt í einu tekst það. Komman límist við sérhljóðana á réttan hátt og þ, æ, ö og ð hoppa inn á skjáinn eins og ekkert sé sjálf- sagðara. Það skilst í einu vetfangi hversu mikilvæg sjálfstæðisbaráttan er okkur. Hvort sem það er barátta við norska kónga, danska höndlara, alþjóðlegar táknatöflur eða voldug amerísk stýrikerfi verða grunnhugmynd- irnar alltaf þær sömu: íslendingar viljum viö vera og íslensku viljum við tala og skrifa. Baráttan er ekki eingöngu byggð á íhaldssemi og sérvisku. Baráttan snýst um það að viðhalda íslenskri auð- legð og byggja upp íslenska framtíðarsýn. Auð- legðin er tungan, sem tjáir hugsun okkar og við- heldur íslenskri menningu. Framtíðarsýnin er full- gild menningarleg og hugmyndafræðileg þátttaka í hinu fjölþjóðlega samfélagi. Ný tækni Hugsunin þarfnast tjáningar, tjáningin tungumáls og tungumálið endurnýjunar. Ný þekking og tækni kalla á ný heiti, skiljanleg orð sem fljótt gefa til kynna hvað um er rætt. Þegar þekkingin verður til í erlendum húsum er ekki von annars en að erlent regn drjúpi. Mjálmið í kettinum hljómar þó eins og hann hugsi á íslensku. Hann skynjar brátt að íslenskar vögguvísur og barnagælur geyma alla þá huggun sem þarf til að sænskur köttur gleymi rigningunni og geti horft með virðulegri ró á íslenskan texta birtast á amerískum tölvuskjá. Hann hefur engar áhyggjur af íslenskum íðorðum eða útlendu tæknimáli. Hann trúir því ekki að ensk heiti séu nákvæmari eða hafi aðra og dýpri merkingu en þau íslensku. Það er eins og hann hafi fyrir löngu orðið fullviss um þá hugmynd skáldsins að íslenskan muni eiga sér orð „ um allt sem er hugsað á jörðu. “ Enginn getur séð fyrir hvert tæknin muni leiða okkur eða hverjar verði kröfur um málakunnáttu framtíðarkynslóðanna. Draumurinn um eitt sam- skiptatungumál (esperantó!) hefur ekki orðið að veruleika, en tölvu- og upplýsingatæknin opnar nýjar dyr. Fram eru komin forrit sem þýða ein- faldan ritaðan texta af einu tungumáli á annað. Fyrst í stað frá orði til orðs og megináherslan verður lögð á að ný fræðiorð séu jafnóðum fyrir hendi. Gera má svo ráð fyrir að smáþjóðirnar muni ekki lengi sætta sig við að þiggja fræðslu- og upplýsingaefni á erlendu tungumáli. Þá koma kröfur um rétt textaskil úr vélrænum þýðingum, fullt samhengi og eðlilega uppbyggingu setninga. Líta má enn lengra og sjá fyrir sér forrit sem þýði talað mál á sama hátt. Samskiptunum verða þá engin önnur takmörk sett en þau sem hrein hugs- un, skýr tjáning, orðaforði og þekking hvers ein- staklings á blæbrigðum málsins setja þeim. Lbl 1999; 85: 660 Sænskur köttur 114 SÍÐASTI PISTILL VAR SKRIFAÐUR í SÆNSKRI smáborg og í félagi við sænskan kött. Honum leiddist sjálfsagt að sitja inni þennan eina rigningardag og að vera settur í það verkefni að fylgjast með stafavillum í íslenskum texta á tölvuskjá. Hann mjálmaði þó öðru hvoru, eins og til samþykkis, virtist íhuga innihald textans gaum- gæfilega. Þegar skýjahulunni létti og sólargeislarnir höfðu þurrkað nánasta umhverfi, stökk hann niður af tölvuborðinu, trítlaði einbeittur niður stigann og skaust út í garðinn. Hann sást síðan svífa í léttum boga yfir girðinguna og hverfa inn í skóginn til norðausturs. Það var ekki fyrr en mörgum sólar- hringum seinna að hann birtist aftur ferðlúinn en geislandi af sínum meðfædda virðuleika. Hann lét lítið uppi um ferðir sínar, en virtist síður en svo óánægður með útiveruna. Af ketlinum segir síðan fátt fyrr en daginn sem yfirlýsing sænsku málnefndarinnar um að lögfesta ætti stöðu sænskrar tungu birtist. Þann morgun all- Læknablaðið/ fylgirit 41 2001/87 113
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.