Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 27
milli. Bundinn skyldi endi á alla er-
lenda ihlutun, og Bandaríkin viður-
kenndu nú Laos að fullu sem hlut-
laust og sjálfstætt ríki.
Þannig gerðist það að Bandaríkin
viðurkenndu Pekingstjórnina í fyrsla
skipli jafnt í verki sem að lögurn,
þegar Kína undirritaði (ásaml Rúss-
landi) Genfarsáttmálann.
Eftir er að vita hvort aðgerðum
Bandaríkjanna í Suður-Vietnam lýk-
ur á hliðstæðan hátt eða enn hörmu-
legri. Hefði ekki verið vel viðeigandi
að spyrja hvort „vestrið“ gæti gert
sér vonir um að sigra „austrið“ í
Vietnam með því að nota kaþólskan
austurlandabúa (eða láta hann nota
sig) í landi sem er andkaþólskt að
90 hundraðshlutum? (Páfagarður
hefur sjálfur aldrei tekið afstöðu í
Vietnam). Vel hefði einnig mátt
spyrja hvort unnt myndi að neyða
andkommúnistísku hernaðareinræði
upp á hálfa þjóð með bandarískum
byssustingjum, þannig að betri ár-
angur fengist en þegar reynt var í sjö
ár að nota franska byssustingi til
hins sama gegn þjóðinni allri. Enn
nærtækara var að spyrja hvort hefð-
armaður úr efstu röðum þeirra fimm
hundraðshluta sem forréttinda nutu í
landinu (og maður sem var dálítið
flekkaður af fyrri samvinnu við
franska heimsvaldastefnu) gæti í
Vietnam, sem þegar hafði háð bylt-
ingarbaráttu í heila kynslóð, komið
á laggirnar einræðisstjórn með „fjöl-
StríS og jriSur í Victnam
skyldufyrirkomulagi“ af svipuðu tagi
og þegar hafði mistekizt undir for-
ystu Syngmans Rhee og Sjangs Kæ-
séks, þótt tálvonirnar um hæfni þeirra
virðist aldrei hafa valdið Dulles á-
hyggjum?
Ngo Dinh Diem var franskmennt-
aður embættismaður úr mandarína-
hirð keisarans frá því fyrir stríð og
hafði eitt sinn búið við þau óblíðu
örlög að vera forsætisráðherra Bao
Dai og neyddur til að framkvæma
fyrirmæli franska hernámsstjórans.
Eftir hernám Japana varð hann for-
ustumaður í hægri armi Kaþólska
ílokksins í Vietnam. (Skráð tala ka-
þólskra manna kann nú að vera um
tvær miljónir; margir þeirra eru
einnig taóistar og búddistar. Um tveir
þriðju þeirra eru í suðurhlutanum).
Ngo Dinh Diem kynni að hafa átt
miklu hlutverki að gegna í óháðu
konungsríki eins og Japanir gerðu
ráð fyrir, en með hinu skjóta valda-
afsali Bao Dai í þágu lýðveldis valt
Diem út úr stjórnmálum. Þar sem
hann hafði áður verið í þjónustuliði
Bao Dai gat ekki beðið hans neitt
meiriháttar hlutverk í samtökum Viet
Minh. Hins vegar var Ngo Dinh Diem
svo kænn að hann neitaði frekari
samvinnu við hina tapandi Frakka.
Það var ekki fyrr en Bao Dai var
gerður þjóðarleiðtogi fyrir allt Viet-
nam að hann tók aftur þátt í ríkis-
stjórn að undirlagi Frakka. Hann
var forsætisráðherra stjórnar Bao
329