Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Side 28

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Side 28
annað þar en að berjast og leika sér. Hinir miklu konungar fornaldar og fylgismenn þeirra eru umluktir dýrðarljóma fortíðar- innar.“15 Það er að vísu rétt að sögurnar tengjast eldri siðfræði hetjuhugsjónar en með því að halda því fram að eddukvæði hafi lagt grunn að frásagnarformgerð Is- lendingasagna er alveg litið framhjá inni- haldi textanna og eins sést mönnum yfir félagslega reynslu fólks af því að búa í landinu undir eigin stjórn í þrjár aldir. Andersson heldur því fram að sögurnar fylgi hetjukvæðum með því að draga átökin saman „í eitt vel upp byggt ris [. . .] Hugs- anaferli höfundarins er vissulega hetjulegt og margt af aðferðum hans í stíl sömuleiðis. Túlkun hans á atburðum með átökum og risi og aðferð hans við að skipta mönnum í fylkingar eru skýr arfleifð frá hetjumynstr- inu.“ (bls. 93). A grundvelli samanburðar við eddukvæði færir Andersson rök að því að sögurnar fylgi fastákveðnu formi.16 Sex hluta kenning hans um söguformgerð (kynning, átök, ris, hefnd, sættir, eftirmál) er fengin úr blöndu af eiginleikum frásagn- arkvæða og þjóðsagna. Andersson játar að áherslan á risið sé dregin af greiningu á hetjukvæðum. Joseph Harris hefur bent á að fræðileg umgjörð verka Anderssons sé „einkum byggð á“ kenningu V. I. Propps um formgerð þjóð- sagna.17 Eins og Harris segir þá er það for- senda slíkrar greiningar að halda formi og innihaldi aðgreindu.18 Uppröðun Propps á þrjátíu og einum frásagnarlið fylgir at- burðarás rússneskra galdraævintýra mjög náið. Hins vegar eru þættirnir sex í grein- ingu Anderssons svo óljósir í samanburði við hugmyndir Propps að þeir sýna aðeins grófustu útlínur í framvindu sagnanna og segja okkur lítið um það sem fram fer í hverri sögu. Mynstrið þvingar atburðarás hverrar sögu inn í mjög óhagganlega, ep- íska samfellu með átökum, risi og lausn. Þessi hugmynd á mjög illa við frásagnar- hefð sem rúmar fjölda smádeilna og margar kynslóðir. Helsta dæmi Anderssons um sex hluta formgerð er Þorsteins þáttur stangarhöggs20 sem hann notar til að sýna hvernig líkan hans fellur að Isiendingasögum. Til þess að 'þátturinn falli að líkaninu gerir Andersson ráð fyrir risi snemma í sögunni þegar bónd- inn Þorsteinn Þórarinsson drepur Þórð, hestasvein og ójafnaðarmann. Er hægt að gera ráð fyrir risi í sögu áður en aðalpers- ónurnar tvær dragast inn í deilumar? Þessi þáttur er einfalt dæmi um frásögn; hann er um Þorstein og deilu hans við goðann Bjama Brodd-Helgason. Dramatískur há- punktur þessarar óvenjulega stuttu (6 bls. í útg. Svarts á hvítu) og blátt áfram sögu er vitaskuld undir lokin þegar Bjarni og Þor- steinn, helstu andstæðingarnir í sögunni, hittast loks og berjast hvor við annan. Þar sem öll sagan er aðdragandi að einvígi þeirra er út í hött að gera ráð fyrir risi fyrr. Samt þvingar Andersson þennan rökrétta hápunkt inn í „hefndarhlutann“. Eins og sjá má af Þorsteins þætti er ekki jafn auðvelt að skilgreina formgerð sagna, þó að þær séu stuttar, og hetjukvæða. Form sagnanna er margbrotið, þar eru margar deilur og mörg ris. Hin fastmótaða form- gerð og atburðaröð sem Andersson boðar fellur að litlu leyti að þessum textum. í Eyrbyggja sögu álítur Andersson að höf- undur hafi klúðrað efninu með því að fylgja ekki hinni „eðlilegu“ röð: „Það sem errugl- andi við söguna er hvernig hún flækir sam- an átökunum. Þættirnir af Vigfúsi, Styr, Bimi Breiðvíkingakappa og Þorbrandsson- um byrja og eru klipptir sundur, stundum tvisvar, áður en þeim lýkur. Þessi samþætt- ing atburðarása er ekki venjulegur frá- sagnarmáti og það er heldur engin augljós ástæða fyrir henni. Það væri raunar hægt að að eyða henni: ef sögunum um Styr (S) og Björn Breiðvíkingakappa (B) væri safnað saman yrði frásögnin samfelldari og sagan 26 TMM 1990:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.