Húnavaka - 01.05.1972, Page 43
HÚNAVAKA
41
Hornbjarg.
Sá þriðji hét Sigurður Thorarensen, og var landskunnur fyrir
glímuafrek á yngri árum. Siggi var frægur fyrir fleira. Hann vó 138
kg. á nærbuxunum og var eintómir vöðvar. Hann var bátsmaður, og
átti að segja fyrir um vinnu á dekkinu. Við strákarnir bárum feikna
virðingu fyrir honum. Varð honum aldrei aflfátt, og svo glíminn var
hann, þótt kominn væri á sextugsaldur, að við komum honum aldrei
af fótunum, þó að við glímdum við hann tveir í einu og þá annar að
aftan. Siggi var heppnari í spilum en almennt gerðist, og spilaði
stundum um geysilegar fjárhæðir. Líka gat hann drukkið meira en
aðrir. Var ég eitt sinn vitni að því, að hann drakk tvær flöskur af
ákavíti fyrir hádegi, og kom svo í mat og borðaði á við tvo. Ef við
strákarnir höfðum farið í land, og blótað Bakkus um of, og vorum
linir til verka daginn eftir, þá hlífði Siggi okkur, sem mest hann
mátti. Það var sú eina ástæða, sem hann tók til greina ef eitthvað
verk gekk illa. Og jafnframt eina veikin, sem hann hafði nokkur
kynni af. Hann var svo rólyndur að það var sem ekkert gæti fengið
hann til að flýta sér. Sjálfur sagði hann að letin hefði bjargað lífi
sínu. Var það á Súðinni gömlu á stríðsárunum, þegar gerð var loft-
árás á hana á Skjálfandaflóa. Stýrimaður sendi hann upp í afturmast-