Húnavaka - 01.05.1972, Page 73
HÚNAVAKA
71
Búgarður i Grnningen. íbúðarhús fremst, milligangur og útihús, rimiig garðlnix
(í flötinni franmn við bteinn.
um voru prammar, og sýnilegt að á þeim voru heilar fjölskyldur,
a. m. k. ef marka mátti það úrval af taui, sem hékk á snúrum yfir
lestarhlerum til þerris. Þetta fólk siglir aðallega á dagiuu, en heldur
kyrru fyrir á nóttunni, og býr alla tíð um borð.
Síðar er haldið af stað lengra til vesturs, og heimsóttur búgarður.
Þar voru svokallaðar Groningen-kýr, þær eru svart-hjálmóttar með
svartan hring um augun og hvítar hosur. Litareinkennið er mjcig
kynfast. Er þetta bæði mjólkur og kjcitkyu, og um 50% nautgripa í
landinu tilheyra því.
Húsin eru sambyggð í rcið, íbúðarhús, milligangur og fjós, þar sem
hlaða fyrir hey og hálm er á lofti, en neðri hæðinni skipt milli mjólk-
urkúa og annars búfjár, að endilöngu. Á þessu svæði tíðkast að
mjalta kýr úti yfir sumarið, eða rúmlega hálft árið. Útihús eru yfir-
leitt með stráþökum, eu asbestþök á íbúðarhúsum. Þrifaleg um-
gengni og snyrtimennska mætti okkur um allt, og þótti hinum
dönsku ferðafélögum jafnvel nóg um, hvað þá okkur Þorfinni. Jarð-
vegur er frjósamur í Groningen, og því stunduð töluverð akuryrkja
samhliða búfjárræktinni.