Húnavaka - 01.05.1972, Side 99
HÚNAVAKA
97
að öðru leyti en því, að þeir eru mikið fyrr á ferðinni með voryrkj-
una, enda loftslagið allt annað.
Uppi í hlíðum fjallanna voru menn að vinna af kappi við að
hreinsa burt fallin tré og runnagróður sem eyðilagzt hafði yfir
vetrarmánuðina. Vegna snjóþyngsla brotnar alltaf talsvert í skóg-
unum á veturna, einnig falla snjóflóð úr hlíðunum ofan við skóg-
inn. Nú mátti heyra bæði sagar- og axarhljóð í allri kyrrðinni sem
þar ríkti. Virtist mér það vera geysimikið verk að hreinsa skógana,
því að úrgangurinn og draslið hrúgaðist upp í stóra hauga. Aðstæð-
ur virðast víðast hvar erfiðar, því að mjög l)ratt er og vont að koma
við vélum til hjálpar. Á örfáum stöðum var hægt að láta trén velta
undan hallanum, þar sem auðar geilar voru í skóginn.
Síðasti dagurinn í Týról, 12. apríl, rann upp. Lagt var af stað
upp úr hádegi, og stefnt til norðurs. Fara átti sömu leið og ekin var
suður og sáum við því fram á nærri sólarhrings bílferð. Lítiðgerðist
markvert á heimleiðinni, því að hratt var farið. Þó sá ég tilsýndar,
er ekið var um Múnchen í Þýzkalandi, hluta af byggingunum þar
sem næstu Olympíuleikar eiga að vera.
Heirn komum við svo þatm 18. apríl, hálfþreytt, en þó kát og glöð
yfir vel heppnaðri skemmtiferð til Týról.
Tíðindi úr Húnaþingi, tínd af spjöldum sögunnar
Arið 1824 Unt haustið, á cinui nótt v;ir farið í 10 kistur í Ási og á Haukaili. cr
voru í útiskeinnuun, af tnanni, sent ])á var sunnlenzkur en alinn upp í Asi. Hugði
hann peninga vera í þeim, en það brást og fór ltann jalnnær.
7