Húnavaka - 01.05.1972, Síða 136
134
HÚNAVAKA
læk á Ásum. Hlaut hann í heilagri skírn, nafn hins sæla Páls postula
frá Tarsus. Voru foreldrar hans Guðmundur Guðmundsson, bóndi
Torfalæk. Góður bóndi og hugsjónaríkur er fékkst um leið við út-
gerð á Skagaströnd. Hann eignaðist, auk Páls, Jón, bónda á Torfa-
læk og Mörtu, húsfreyju á Skagaströnd. Móðir Páls var Ingibjörg
Ingimundardóttir, smáskammtalæknis og bónda á Tungubakka í
Laxárdal Sveinssonar. Var Ingimundur talinn heppinn og nærfær-
inn í læknisdómi sínum, allvel gáfaður, skjótur til úrskurðar og
slyngur að koma fyrir sig orði og höfðingjadjarfur. Páll ólst upp með
móður sinni, er var sjálfra sín þar sem hún bjó í Torfalækjarhreppi.
Hún var gáfuð kona, vinnugefin og vildi allt gera fyrir son sinn.
Þótti snemma bera á góðri skýrleiksgnótt hjá Páli, er kallaði á lær-
dóm og mun hann rneira hafa verið gefinn fyrir bókina, en sveita-
vinnu. Þau mæðginin dviildu í góðu yfirlæti hjá Guðmundi bónda
á Torfalæk um árabil og konu hans, Sigurlaugu Jónsdóttur, er
reyndist Páli frábærlega. Frændsemi og venzli við Guðmund Björns-
son landlækni greiddu götu Páls til náms og dvaldist hann í húsi
hans í Reykjavík á námsárum sínum. Hin mikilhæfa kona Jóns á
Torfalæk var Ingibjörg systir Guðmundar Björnssonar.
Sást Jrað brátt, að Páll var afburða námsmaður, stúdent 18 ára og
við lokapróf í læknisfræði 19. júni 1920 hlaut hann, að ég ætla eina
af fimm hæstu aðaleinkunnum. Mun Jrað og hafa verið honum mik-
ils virði að dvelja með og blanda geði við Guðmund Björnsson, land-
lækni, er hann dáði mest allra Húnvetninga. Þá mun það hafa verið
honum nokkur lífsraun, en harður skóli, að vera sem læknanemi
suður með sjó, í stríði því er fólk háði við liina svonefndu Spönsku
veiki.
Þá er Páll bjó í landlæknishúsinu, rétt við Menntaskólann, bjó
þar í hlaðvarpanum mikill lærdómsmaður og trúmaður, sr. Friðrik
Friðriksson í K. F. U. M. A fjöldi manna honum mikið að Jrakka og
taldi Páll sig, án efa, einn í hópi þeirra. Páll var trúhneigður alla
æfi og bænrækinn, eins og sagt var um Pál Vídalín, lögmann og
jafnan gerði Páll Kolka bæn sína áður en hann hóf læknisaðgerð.
Má marka álit sr. Friðriks á Páli af því, að hann gerði hann um skeið
leiðtoga K. F. U. M. í fjarveru sinni. Enda fór Páll aldrei dult með
sína trúarlegu lífsskoðun, hvorki í ræðu né riti. Er það ætlun vor,
að Guðmundur landlæknir og sr. F'riðrik hafi haft mikil áhrif á
þroska Páls.