Húnavaka - 01.05.1972, Page 166
164
HÚNAVAKA
Fyrirhuguð eru á þessu ári
kaup á einni skurðgröfu með
föstum armi, þar eð önnur graf-
an sem sambandið á fyrir er orð-
in verulega slitin og ekki hægt
að ætla lienni að skila fullum af-
köstum.
Framkvæmdastjóri Ræktunar-
sambandsins er Guðbjartur Guð-
mundsson héraðsráðunautur á
Blönduósi.
Eitt af verkefni^n Búnaðar-
sambandsins er rekstur bygging-
arsamtaka og starfræksla bygg-
ingarflokks. Eru það einkum úti-
hús hverskonar, sem byggð eru,
enda eru byggingarmótin miðuð
við þannig byggingar fyrst og
fremst. Mikil verkefni lágu fyrir
s. 1. sumar og tókst ekki að ljúka
pöntunum. Verkstjóri var Hall-
grímur Hansson liúsasmiður úr
Reykjavík. Miklar pantanir
liggja fyrir á komandi sumri, og
vart hugsanlegt að hægt sé að
fullnægja þeim.
Fyrirhuguð eru kaup á nýrri
steypuhrærivél í ár, til nota fyrir
byggingarflokkinn, en gamla vél-
in er vart nothæf lengur.
Marga fleiri þætti í starfsemi
Búnaðarsambandsins mætti telja.
unnið hefur verið að, að koma
á föstum samkomudegi bænda í
héraðinu, og liggur fyrir sam-
þykkt aðalfundar Búnaðarsam-
bandsins um að gera Jónsmessu-
kvöld að samkomudegi hún-
vetnskra bænda. Ágæt samkoma
fór fram 24. júní s. 1. í Félags-
heimilinu á Blönduósi að til-
hlutan B.S.A.H. Hófst hún með
sameiginlegri kaffidrykkju sam-
komugesta, og var því næst hlýtt
á ýmis skemmtiatriði, en síðan
stiginn dans fram eftir nóttu.
eftir músik frá hinni góðkunnu
hljómsveit Þorsteins Guðmunds-
sonar frá Selfossi.
Húnvetnskir bændur og
bændafólk þurfa að gera þennan
samkomudag sem myndarlegast-
an í framtíðinni.
Gróðurverndarmál eru mjög
til umræðu hér í Húnaþingi sem
og víðar. Búnaðarsambandið
mun vissulega verða virkur aðili
að öllum framkvæmdum og ráð-
stöfunum, er miða að, að auka
gróður og graslendi liéraðsins til
aukningar blómlegs búskapar og
bættrar afkomu.
Kristófer Kristjánssson.
PÓLARPRJÓN.
Fyrir nokkru bundust fáeinir
Húnvetningar samtökum um að
setja upp prjónastofu á Blöndu-
ósi. Hafin var hlutafjársöfnun
og urðu hlutafélagar 15. Samtals
er hlutafé 1.600.000.00 krónur.
Félagið var skírt Pólarprjón h. f.
Utvegun vélakosts og uppsetn-