Húnavaka - 01.05.1972, Page 185
HÚNAVAKA
183
FRÉTTABRÉF FRÁ SAMBANDI
HÚNVETNSKRA KVENNA.
Aðalfundur S.A.H.K. var hald-
inn á Blönduósi 20. maí sl. Aðal-
mál fundarins voru æskulýðsmál.
Ólafur H. Kristjánsson, skóla-
stjóri á Reykjum í Hrútafirði,
flutti athyglisvert erindi um
vandamál ungs fólks og foreldra,
og lagði aðaláherzluna á, að
heimilin brygðust ekki skyldum
sínum við börnin sem einstakl-
inga og þjóðfélagsþegna.
Jón ísberg sýslumaður flutti
erindi um æskulýðsmál, og talaði
bæði sem lögreglustjóri og for-
maður Æskulýðsráðs. Hvatti
hann mæðurnar til að brýna fyr-
ir börnunum, að virða lög og
reglur.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
flutti erindi um heilbrigðismál.
Dómhildur Jónsdóttir ræddi
um húsmæðrafræðsluna.
í júlímánuði kom snyrtidama
á vegum sambandsins og var
með fótasnyrtingu fyrir vistmenn
á ellideild Héraðshælisins á
Blönduósi. Sambandið greiddi
allan kostnaðinn.
Sambandsfundur norðlenzkra
kvenna var haldinn að Húna-
völlum dagana 9.—11. júní.
S.A.H.K. sá um allan undirbún-
ing, enda var fundurinn haldinn
í boði þeirra. Kostnaður varð
röskar 30.000,00 kr.
Samvinnufélögin á Blönduósi
veittu 20 þús. kr. styrk vegna
fundarins. Auk þess gáfu nokkr-
ar konur vinnu sína við undir-
búning og frágang á skólanum.
Sett var upp sýning í sam-
bandi við fundinn.
Frá orlofsnefnd: Farin var
þriggja daga ferð í Þingeyjar-
sýslur í júní og voru þátttakend-
ur 52. Það hefur komið greini-
lega í ljós að meiri áhugi er fyrir
orlofsferðum en orlofsdvöl.
Frá heimilisiðnaðarsafni: Á
síðasta ári var unnið að endur-
bótum á væntanlegu safnhúsi.
Veittur var 25 þús. kr. styrkur til
safnsins á fjárlögum 1971, auk
þess sem frá sýslunni kemur ár-
legt framlag.
í sambandi við Landsspítala-
söfnunina má geta þess að kven-
félögin í sýslunni söfnuðu tæp-
um 70.000,00 kr.
Félögin innan sambandsins
eru 10, félagar samtals 227.
Fundir á árinu voru 32, og aðrar
samkomur 31. Sjóðir í eigu félag-
anna voru 1.217.235,47 kr.
E. Þ. S.
FRÉTTAVIÐTAL.
Kvennaskólinn á Blönduósi hef-
ur á löngum starfsferli hýst
margar námsmeyjar, og sumar
þeirra hafa ílengzt í héraðinu, til
hagsældar fyrir ýmsa Húnvetn-