Húnavaka - 01.05.1972, Page 205
HÚNAVAKA
203
vatnsgeymir og sérstaka slökkvi-
dælu, ásamt brunastiga. Slökkvi-
dælan afkastar 4 tonnum af vatni
á mínútu. Stútum á vatnsslöngu
má breyta úr vatnsbunustút í
vatnsúðastút.
Áður átti hreppurinn bruna-
dælu á kerru.
Slökkviliðsstjóri er Karl
Berndsen, vélsmiður.
Það hefur þótt á skorta, að í
Höfðakaupstað væru staðsett
tæki til tannlækninga. Hefur nú
hreppsnefndin úr þessu bætt.
Hefur verið tekið gott herbergi
í læknisbústaðnum, til þessara
liluta. Hefur þar verið komið
fyrir fullkomnum tannlækninga-
tækjum. Geta því tannlæknar
hafið þar lækningar, þegar þeir
fást og þurfa þykir. Vænta menn
af þessu heilsubótar og þæg-
inda.
Sjómannadagurinn var hald-
inn sunnudaginn 6. júní. Hófst
hann með skrúðgöngu fólks til
Hólaneskirkju kl. 10.30. Sr. Gísli
Kolbeins predikaði. Að lokinni
messu var komið saman á kirkju-
lóðinni. Þar tók skóflustungu
formaður slysavarnafélagsins,
Birgir Árnason, að minnismerki
drukknaðra sjómanna. Séra Pét-
ur Þ. Ingjaldsson talaði.
Eftir hádegi fór fram hjá
Hafnarhúsinu útihátíð dagsins.
Þar flutti ræðu séra Gísli Kol-
beins. Með silfurmerki dagsins
Koddaslagur á Sjómannadaginn.
var heiðraður Sigurður Guð-
mundsson sjómaður, Þórsmörk.
Kappróður var og kepptu 4
sveitir. Farandbikar hlaut róðr-
arsveitin á Arnari, skipstjóri
Bjiirn Haraldsson. Tvær sveitir
unglinga kepptu og síðan fóru
fram íþróttir og leikir, þar á
meðal koddaslagur, er mynd
birtist af.
Hátíðin endaði með samkomu
í Fellsborg. Formaður sjómanna-
dagsráðs var Guðmundur Jó-
hannesson.
Kirkjumál: Þann 23. febrúar
fór kvenfélagið Einingin inn á
Héraðshæli og veitti vistmönn-
um góðgerðir eftir messu þar, en
sr. Pétur Þ. Ingjaldsson predik-