Gerðir kirkjuþings - 01.01.1985, Blaðsíða 59
52
Endanleg gerð
SVAR VIÐ LIMASKÝRSLU
INNGANGUR
Islenska kirkjan hefur með þakklæti tekió á móti Limaskýrsl-
unni "Skírn, máltiö Drottins, þjónusta." I henni erum vér
hvött til þess aó ihuga frumþætti kristinnar trúar, til-
beiöslu og skipulags og vekur samstaöa fulltrúa hinna mörgu
kirkna sem birtist i skýrslunni hjá oss gleði og von um, aó
sýnileg eining kristinna manna sé raunhæft markmið að stefna
aó.
Limaskýrslan er ekki játningarrit og flytur enga fullnaöar-
kenningu um skírn, máltíó Drottins og þjónustu kirkjunnar,
heldur er markmió hennar aö sýna fram á, hversu langt kirkj-
urnar hafa náó í einingarvióleitni sinni og hvernig hægt er
aó horfa á ágreiningsefni í nýju ljósi með því að kirkjurnar
ihuga í sameiningu þann arf sem þeim er sameiginlegur.
Er gildi hennar ekki síst fólgió í þvi aö knýja oss til aó
íhuga efni eigin játningar og spyrja um gildi hennar fyrir
oss. Samtímis gefur hún oss kost á aó auðga eigin arfleifó
með þvi aó íhuga atriöi sem ekki eru áberandi í eigin játn-
ingu meóal annars vegna þess ástands sem ríkti í kirkjunni
þegar játning vor varó til.
I formála skýrslunnar er aö finna spurningar, sem Trúar- og
skipulagsmálanefnd Alkirkjuráðsins biður kirkjurnar að taka
miö af, er þær senda sitt opinbera svar vió Limaskýrslunni.
Munum vér leitast vió aó svara spurningum nefndarinnar, en
vér viljum taka fram, að sökum þess hve stutt er síóan
skýrslan kom út á íslensku, getum vér ekki litiö svo á, aó
þetta svar vort sé fullnaöarsvar, heldur fyrst og fremst
áfangi.
Áóur en vér hefjumst handa vió einstök atriði skýrslunnar,
viljum vér skýra, hvernig vér skiljum spurningar nefndar-
innar.
Fyrsta spurningin er, aó hve miklu leyti kirkja vor sjái i
textanum "trú kirkjunnar á öllum öldum."
önnur spurningin er um ályktunina, sem kirkja vor dragi af
textanum varóandi samvinnu og samræður vió aðrar kirkjur,
einkum þær sem líka sjá i textanum tjáningu á postullegri
trú.
Þriðja spurningin er um þann lærdóm sem kirkja vor dragi af
textanum í sambandi vió endurnýjun á helgihaldi sínu,
menntamálum, félagslegu og andlegu lífi sínu og vitnisburói.
I fjóröu spurningunni er kirkja vor beóin um aó veita Trúar
og skipulagsmálanefnd Alkirkjuráósins ráóleggingar i sam-
bandi viö langtimarannsóknarverkefni hennar: " I átt til
sameiginlegrar tjáningar á hinni postullegu trú fyrir nú-
timann."