Gerðir kirkjuþings - 01.01.1985, Síða 47
40
kirkna. Sú viðurkenning er forsenda einingar í kirkjunni og
raunar skilyrói þess, að einingarviðleitnin geti talist ann-
að og meira en fræðileg vangavelta.
3. Hvaó getur kirkja þín lært af þessum texta til endur-
nýjunar helgihaldi sínu, menntamálum, félagslegu og
andlegu lífi sínu og vitnisburói?
í kenningararfi sinum geymir kirkja vor mörg hin sömu
áhersluatriði og Limaskýrslan. Orðið og sakramentin eru þau
tæki, sem Heilagur andi skapar trúna meó. Má minna á hörð
ummæli Marteins Lúthers í garð þeirra er telja sig geta
verió án sakramentisins. Þeir sýna ekki aóeins sakramentinu
vanviróingu, heldur fyrirlíta þeir Krist og hjálpræði hans.
Staða máltíðar Drottins í kirkju vorri hefur hins vegar ekki
alltaf verið sú sem kenningararfurinn gefur tilefni til. Er
vafalaust margt, sem veldur því bæói einhæf túlkun i þá átt,
að altarissakramentió tengdist fyrst og fremst iðrun og
yfirbót og skyldi þá ekki neytt nema réttur undirbúningur
væri fyrir hendi, og áhrifamikil guðfræðistefna, sem mat
ekki réttilega gildi altarissakramentisins. Staðreynd er,
aó á sióustu öld og frameftir þessari fækkaði altarisgöngum
mjög og fóru sárasjaldan á ári hverju fram innan safnaða, þó
að kenningararfur vor gæfi tilefni til, aó vér færum að
áminningu 31. gr. i kaflanum um máltið Drottins.
Á sióari árum hefur orðió breyting á þessu. Bæði hefur
altarisgöngum fjölgaó og þá hefur farið fram nokkur endur-
nýjun á helgisiðum. Virðist þaó einmitt hafa stuólað aó
endurnýjun messunnar, að menn enduruppgötvuðu hina siungu
arfleifó kirkjunnar á öllum öldum varðandi máltið Drottins
og liðir, sem stuóla að þvi aó gera messuna að athöfn
þakkargjörðar, minningar, ákalls og samfélags, voru hafnir
til vegs á nýjan leik.
Limaskýrslan hvetur oss til þess aó hugsa áfram um stöóu
máltióar Drottins i kirkjunni. Er það bæði vegna þess, hve
framsetning hennar tengist eigin kenningararfi og ekki siður
vegna hins sem hún sækir úr kenningararfi annarra kirkna.
Eins og ný hugsun hefur þegar oróió til endurnýjunar hér,
svo munu frekari mót kirkju vorrar við aórar kirkjur og
hefðir þeirra geta verió til enn frekari endurnýjunar.
Limaskýrslan hvetur oss ennfremur til þess aó halda áfram
endurnýjun á helgihaldinu. Tökum vér undir áherslu skýrsl-
unnar á, aó endurnýjun á helgihaldi sé ekki fyrst og fremst
spurning um form, heldur um inntak og eðli kristnilífsins.
Ekkert ákveðið messuform er forsenda athafnarinnar, heldur
er fyrirheit Krists forsenda athafnarinnar (sbr. 2. og 13.
gr.). Tökum vér ennfremur undir oró 28. gr. um, aó marg-
breytileiki sé heilsusamlegur og auðgandi fyrir líf kirkj-
unnar.
1 Limaskýrslunni er lögð áhersla á hlutdeild Heilags anda í
sambandi við að gera Krist nærverandi í sakramentinu. Er
þessi áhersla ný gagnvart oss, sem lengst af höfum litið svo
á, að nærvera Krists í sakramentinu grundvallist á orði og
fyrirheiti Krists sjálfs. Hins vegar hefur hlutdeild
Heilags anda í lífi þeirra sem neyta verió ítrekuð. ítreka